Erlent

Hafnað með af­gerandi hætti

Smári Jökull Jónsson skrifar
Elisabeth Thand Ringqvist var hafnað með afgerandi hætti.
Elisabeth Thand Ringqvist var hafnað með afgerandi hætti. Vísir/EPA

Tillaga um að Elisabeth Thand Ringqvist verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar var felld í sænska þinginu með afgerandi hætti nú eftir hádegið. Ljóst var fyrir atkvæðagreiðsluna að Ringqvist væri ekki með meirihluta þingmanna á bak við sig og færast Svíar sífellt nær þeim möguleika að kjósa þurfi upp á nýtt.

Pattstaðan í sænskum stjórnmálum hefur verið algjör í kjölfar kosninganna þann 12. september síðastliðinn. Þrátt fyrir að vinstriblokkin, sem var í stjórnarandstöðu síðustu fjögur ár, hafi náð meirihluta þá hefur ekkert gengið að mynda ríkisstjórn.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar í dag um Elisabeth Thand Ringqvist sem forsætisráðherra voru afgerandi en 324 þingmenn sögðu nei og 25 þingmenn já. Er þetta í annað sinn sem tillaga um forsætisráðherra er borin fram í þinginu en alls getur þingforseti borið fram fjórar slíkar tillögur en verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga.

Amanda Lind

Talsmaður Græningja.


Daniel Helldén

Talsmaður Græningja.


Ebba Busch

Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra.


Elisabeth Thand Ringqvist

Formaður Miðflokksins.


Jimmie Åkesson

Formaður Svíþjóðardemókrata.


Magdalena Andersson

Formaður Sósíaldemókrata.


Nooshi Dadgostar

Formaður Vinstriflokksins.


Simona Mohamsson

Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra.


Ulf Kristersson

Formaður Moderaterna og forsætisráðherra.

Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins, sem er stærsti flokkurinn á sænska þinginu, fékk stjórnarmyndunarumboðið upphaflega þegar úrslit kosninganna voru ljós. Skilaði hún því þó fljótlega aftur þegar lítið hafði gengið í viðræðum. Forseti þingsins ákvað hins vegar að hún skyldi reyna áfram og var lögð fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra þann 15. október.

Var sú tillaga felld en vandræði Andersson, sem allir fjórir vinstri flokkarnir hafa stillt upp sem sínum forsætisráðherrakandídat, snúast að því að Miðflokkurinn vill ekki sitja í stjórn með Vinstriflokknum. Til að vinstri blokkin geti myndað ríkisstjórn þyrfti Miðflokkurinn að bakka frá þessari kröfu sinni eða Vinstriflokkurinn aðeins vera stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar, án þess að fá ráðherrastóla.

Það eru forystumenn Vinstriflokksins ekki tilbúnir að samþykkja og staðan því snúin.

Umboðið færist til Kristersson

Eftir að Andersson var hafnað ákvað þingforsetinn Anders Norlén að veita Elisabeth Thand Ringqvist stjórnarmyndunarumboðið en Miðflokkurinn er hluti af vinstri blokkinni.

Ætlaði Ringqvist að freista þess að mynda miðjustjórn og fá forystumenn Frjálslyndra og Kristilegra demókrata úr hægriblokkinni til að hoppa í eina sæng með Miðflokknum, Græningjum og Jafnaðarmönnum. Vinstriflokkurinn yrði þá utan stjórnar.

Fljótlega varð þó ljóst að myndun slíkrar stjórnar var vonlaust verkefni. Kom það því töluvert á óvart þegar Norlén þingforseti ákvað engu að síður að bera fram tillögu um Ringqvist sem forsætisráðherra í fimm flokka stjórn, sérstaklega þar sem Ringqvist virtist lítinn áhuga hafa á því sjálf að stýra slíkri stjórn.

Hefur Norlén sagt að hann vilji að stjórnarmyndunarviðræður séu leiddar til lykta með atkvæðagreiðslu í þinginu og með því vilji hann setja pressu á þingmenn því möguleikunum fækki með hverri kosningu.

Niðurstöður þingkosninga
þegar 100% atkvæða hafa verið talin

Mun stjórnarmyndunarumboðið nú færast til Ulf Kristersson, starfandi forsætisráðherra og formanns hófsama hægriflokksins Moderaterna, en þingforseti tilkynnti að það myndi gerast ef tillaga hans um Elisabeth Thand Ringqvist sem forsætisráðherra yrði felld í dag.

Kristersson mun freista þess að sannfæra Ringqvist og liðsmenn hennar í Miðflokknum um að ganga til liðs við hægriblokkina. Til þess að það gangi upp þarf þó mikið að gerast en Ringqvist hefur verið hörð á því að starfa ekki í ríkisstjórn með fjarhægriflokknum Svíþjóðardemókrötum sem er hluti af hægriblokkinni og hafði fyrir kosningarnar gert kröfu um ráðherrastóla.

Að undanförnu hafa þó heyrst raddir innan úr Miðflokknum um að flokkurinn ætti að leita til hægri auk þess sem forystumenn Svíþjóðardemókrata hafa tjáð sig á þeim nótum að ætla megi að þeir myndu mögulega sætta sig við að vera aðeins stuðningsflokkur slíkrar stjórnar.

Fær Kristersson viku til að reyna að mynda starfhæfa stjórn og á hann að greina frá niðurstöðum viðræðna næstkomandi þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×