Fótbolti

Tómas riðaði eftir höfuð­högg og endaði á sjúkra­húsi

Sindri Sverrisson skrifar
Tómas Bent Magnússon reyndi að halda áfram eftir höfuðhöggið en það var ekki áhættunnar virði.
Tómas Bent Magnússon reyndi að halda áfram eftir höfuðhöggið en það var ekki áhættunnar virði. Samsett/Getty

Tómas Bent Magnússon varð að hætta snemma vegna höfuðhöggs, í leik með Hearts í Edinborgarslagnum gegn Hibernian í skoska deildabikarnum í fótbolta í dag.

Eyjamaðurinn fékk höfuðhögg snemma leiks og var óttast að hann hefði hlotið heilahristing.

Samkvæmt frétt Edinburgh Evening News stóðst Tómas þó skoðun í fyrstu, þegar metið var hvort hann hefði hlotið heilahristing, en á endanum varð ljóst að hann gæti ekki haldið áfram leik og var hann sendur á sjúkrahús.

„Tómas stóðst heilahristingsprófið og kom svo til mín og vildi fara inn á,“ sagði Wouter Vrancken, þjálfari Hearts.

„Síðan var hann að riða til vinstri og hægri, hann gat ekki lengur staðið í lappirnar. Þegar ég sá það var enginn vafi í huga manns um að maður myndi ekki leyfa honum að halda áfram á vellinum á þeirri stundu, því maður getur ekki tekið áhættuna. Svo sá hann það líka sjálfur á sama augnabliki. Hann sagði: „Nei, ég get þetta ekki.“ Og þá þurftum við að skipta honum út, og núna er hann farinn á sjúkrahúsið, svo ég veit ekki meira,“ sagði Vrancken.

Hearts-menn voru komnir í 1-0 þegar Tómas meiddist en leikur liðsins hrundi við brotthvarf Tómasar og komst Hibernian í 2-1 áður en fyrri hálfleik lauk. Það varð lokastaðan og því mun Hibernian spila úrslitaleik keppninnar við Rangers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×