Körfubolti

Starfs­fólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið

Andri Broddason skrifar
Leikmenn New York Knicks voru ánægðir með að fá hringana sína. Ekki er þó hægt að segja það sama með starfsfólk félagsins.
Leikmenn New York Knicks voru ánægðir með að fá hringana sína. Ekki er þó hægt að segja það sama með starfsfólk félagsins. Sarah Stier/Getty Images

New York Knicks náði að verða NBA-meistari í fyrsta skipti í 53 ár á síðasta tímabili og var því fagnað fyrr í vikunni þegar nýtt tímabil byrjaði. Þrátt fyrir það er dramatík innan herbúða Knicks þar sem starfsfólki finnst það vera svikið.

Lengi hefur verið hefð fyrir því að liðið sem verður NBA-meistari fái sérútbúinn hring til merkis um afrekið. Formlega fá leikmenn aðallega hringana en hefð hefur skapast fyrir því að félagið sem vinnur skaffi einnig hringa fyrir starfsfólk og þjálfara félagsins.

The Athletic greinir frá því að sumir starfsmenn Knicks hafi fengið tölvupóst þar sem starfsfólk hafi folk átti að geta valið milli tveggja gerða af hringjum. Þegar starfsfólkið valdi svo hring í gegnum hlekk í tölvupóstinum var þeim beint að námskeiði fyrir netöryggi.

Skiljanlega eru margir starfsmenn félagsins súrir þar sem meistarahringir geta verið virkilega verðmætir. Oft fær starfsfólk ekki jafn dýran hring og leikmennirnir en þrátt fyrir það er hann mjög verðmætur.

Einnig vakti athygli að þegar verið var að afhenda leikmönnum hringana sína fyrir fyrsta leik tímabilsins gegn Philadelphia 76ers var aðstoðarþjálfurum liðsins réttur svartur kassi líkt og þeir sem eru utan um hringana. Þeir voru hins vegar tómir og fengu aðstoðarþjálfararnir enga hringa.

Aðstoðarþjálfurum var sagt daginn sem leikurinn var haldinn að þeir myndu ekki fá hringa. Það kom þó flestum ekki á óvart þar sem enginn af þjálfurunum hafði farið í mælingu fyrir hringana en þrátt fyrir það hafi það verið pirrandi og reitt suma þjálfara til reiði.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×