Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Krabbameinsfélagið 16. október 2026 13:34 Árlega greinast nú að meðaltali um 2.146 einstaklingar með krabbamein og við getum reiknað með því að 1 af hverjum 3 Íslendingum fái krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Meginmarkmið Krabbameinsfélagsins er að færri fái krabbamein, fleiri læknist eða lifi lengi, og að þeim líði betur, með og eftir krabbamein. Að fá krabbamein er ein stærsta áskorunin í lífi fólks. Árlega greinast nú að meðaltali um 2.146 einstaklingar með krabbamein og við getum reiknað með því að 1 af hverjum 3 Íslendingum fái krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Á síðustu áratugum hafa orðið gríðarlegar framfarir í greiningu og meðferð krabbameina og lifendum fjölgar hratt. Samt er staðan þannig að árlega missum við að meðaltali 651 einstakling af völdum krabbameina og krabbamein eru áfram ein algengasta dánarorsökin. Fæstir vita að Krabbameinsfélagið nýtur ekki opinberra styrkja. Allt sem við gerum er fjármagnað með styrkjum frá fólki og fyrirtækjum og væri ekki mögulegt án þeirra. Tilgangur okkar hjá Krabbameinsfélaginu er að draga úr áhrifum krabbameina á samfélagið með því að skapa þekkingu, berjast fyrir breytingum og veita stuðning. Við þekkjum vel aðstæður fólks sem hefur fengið krabbamein og aðstandenda þeirra og erum öflugur bakhjarl þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Við erum óendanlega þakklát fyrir stuðninginn. Framundan eru stórar áskoranir sem fylgja mikilli fjölgun krabbameina, en með öflugum stuðningi höldum við ótrauð áfram, því lífið liggur við. Nánari upplýsingar má nálgast á vef félagsins, www.krabb.is. Hægt er að fá símaráðgjöf í síma 800 4040 mánudaga til fimmtudaga kl. 9-16 og á föstudögum kl. 9-14. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is . Kíktu við í Skógarhlíð 8 (Reykjavík) eða Glerárgötu 24 (Akureyri) og fáðu nánari upplýsingar um starfsemina. Hagsmunagæsla Ótalmörg baráttumál félagsins hafa orðið að veruleika undanfarna áratugi og í mörgum tilvikum hefur félagið haft frumkvæði að verkefnum sem þykja sjálfsagður hluti af krabbameinsþjónustu í dag. Sem dæmi má nefna skráningu og síðar gæðaskráningu krabbameina, heimahlynningu, skimanir, tóbaksvarnir og innleiðingu krabbameinsáætlunar. Nýlega barðist félagið fyrir því að ráðist yrði til nauðsynlegra aðgerða til að stytta biðtíma eftir geislameðferðum, auk þess sem félagið hefur heitið allt að 75 milljónum til að styðja við framkvæmd aðgerðaáætlunar í krabbameinsmálum. Stuðningur og ráðgjöf Enginn á að takast á við krabbamein einn. Reynslumiklir ráðgjafar okkar, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar og félagsráðgjafar, aðstoða fólk við að ná jafnvægi í daglegu lífi í þeim breyttu aðstæðum sem krabbamein veldur. Við bjóðum meðal annars upp á ókeypis viðtöl fyrir einstaklinga og fjölskyldur, ráðgjöf, fræðslu og fjölbreytt námskeið. Hægt er að hafa samband í síma 800 4040 eða með því að senda tölvupóst á radgjof@krabb.is. Fjarlægð er engin hindrun og við bjóðum upp á fjarviðtöl, auk viðburða og námskeiða í streymi. Félagið á einnig íbúðir í göngufæri við Landspítalann þar sem fólk utan af landi getur dvalið ásamt aðstandendum sínum á meðan á krabbameinsmeðferð stendur. Forvarnir og fræðsla Markvissar forvarnaraðgerðir sem bæta lýðheilsu geta komið í veg fyrir margar tegundir krabbameina. Við höfum séð mikinn árangur af öflugu forvarnastarfi félagsins, meðal annars í könnunum sem mæla þekkingu fólks á áhættuþáttum krabbameina. Við leggjum einnig okkar af mörkum við að útfæra verkfæri sem nýtast fólki með beinum hætti. Matarvefurinn Gott og einfalt er nýlegt dæmi um slíkt, en því til viðbótar hefur félagið nýlega stofnað Framfarasjóð og lagt honum til 75 milljóna stofnframlag. Sjóðurinn er settur á fót til að styðja við ný verkefni sem bæta þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra og ný forvarnarverkefni. Rannsóknir og skráning Við færum línuna þegar kemur að þróun meðferðar, fræðslu og þekkingar. Hjá Krabbameinsfélaginu er haldið utan um skráningu allra krabbameina á Íslandi og gagnagrunn um gæði greininga og meðferða, í samstarfi við Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri. Hjá félaginu er einnig unnið að krabbameinsrannsóknum á borð við nýlega rannsókn um lífsgæði eftir greiningu krabbameins, en niðurstöður hennar munu nýtast með beinum hætti til að gera góða þjónustu enn betri. Auk þess hefur Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitt 774 milljónum króna til 67 íslenskra krabbameinsrannsókna. Sjóðurinn er stærsti íslenski sjóðurinn sem er sérstaklega ætlaður krabbameinsrannsóknum og vísindafólk tók stofnun hans fagnandi. Fjölbreytt miðlun Til að starfsemi félagsins skili tilætluðum árangri er mikilvægt að fólk þekki vel til hennar. Hlutverk okkar er ekki síst að auka þekkingu í samfélaginu um hvað hægt sé að gera til að draga úr líkum á krabbameinum, hver helstu einkenni krabbameina séu og að veita bjargráð og fræðslu um líf og líðan þeirra sem hafa greinst með krabbamein og aðstandenda þeirra. Það gerum við til dæmis með því að miðla sögum þeirra sem reynsluna hafa og skapa vettvang þar sem raddir þeirra fá að hljóma. Við höldum úti öflugri vefsíðu og erum á öllum helstu samfélagsmiðlum og streymisveitum. Heilsa Krabbamein Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Lífið samstarf Fleiri fréttir Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Sjá meira
Hægt er að fá símaráðgjöf í síma 800 4040 mánudaga til fimmtudaga kl. 9-16 og á föstudögum kl. 9-14. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is . Kíktu við í Skógarhlíð 8 (Reykjavík) eða Glerárgötu 24 (Akureyri) og fáðu nánari upplýsingar um starfsemina.
Heilsa Krabbamein Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Lífið samstarf Fleiri fréttir Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Sjá meira