Boltamömmur í miðjumoði Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. október 2026 07:01 Kristín Þóra er ein vanmetnasta leikkona landsins og skilar alltaf sínu. Boltamömmur eru fagmannlega gerðir gamanþættir um ofstopafulla hegðun foreldra á fótboltaleikjum, bælar miðaldra konur og leyndarmál í úthverfunum. Þættirnir eru skemmtilega vandræðalegir með sterkum frammistöðum og nokkrum grínsprettum. Hvorki dramað né spennan eru tekin alla leið og enda þeir þess vegna í hálfgerðu miðjumoði.
Sex þátta gamanserían Boltamömmur er hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur sem fer með eitt aðalhlutverkanna og skrifar handritið ásamt Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur, Sóla Hólm, Hafsteini Gunnari Sigurðssyni og Hannesi Þór Halldórssyni. Leikstjórar þáttanna eru Hannes Þór og Hafsteinn Gunnar og eru þeir framleiddir af Atlavík. Fyrir utan Lilju Nótt eru helstu hlutverk seríunnar skipuð Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Þorvaldi Davíð Kristjánssyni, Hildi Völu Baldursdóttur, Önnu Svövu Knútsdóttur, Iðunni Ösp Hlynsdóttur, Ólafi Agli Egilssyni, Mikael Kaaber, Sverri Þór Sverrissyni og Aðalbjörgu Árnadóttur. Hin nýfráskilda Diljá (Kristín Þóra) stendur á tímamótum og ákveður að sökkva sér í fótbolta dóttur sinnar. Þar er fyrir systirin Kara (Lilja Nótt) sem fær útrás fyrir brostinn fótboltadraum sinn með öskrum á hliðarlínunni. Við þetta bætist fyrrverandi eiginmaðurinn Eiríkur (Þorvaldur Davíð), fullkomni matarbloggarinn Svansí (Hildur Vala), veipandi yfirstéttarskinkan Sólveig (Anna Svava) og huggulegi yfirþjálfarinn Breki Olsen (Mikael Kaaber). Úr verður saga um leyndarmál, ástir og óðar boltamömmur. Boltamömmur voru frumsýndar á Sjónvarpi Símans þann 10. september síðastliðinn, luku göngu sinni sex vikum síðar en eru áfram aðgengilegir á veitunni. Leyndarmál úthverfanna Úthverfin hafa löngum verið frjór jarðvegur fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti hvort sem það eru melódramatískar myndir Douglas Sirk frá sjötta áratugnum, sótsvartar kómedíur á borð við Heathers (1988), The Burbs (1989) og Happiness (1998) eða mysteríurnar Desperate Housewives (2004-12) og Big Little Lies (2017-19). Úthverfin eru yfirleitt friðsæll og öruggur staður fyrir barnafjölskyldur og góðborgara en undir sléttu og felldu yfirborðinu dvelur jafnan eitthvað myrkara: bældar þrár, mislukkuð hjónabönd og falin leyndarmál. Bandaríkjamenn hafa margsinnis tæklað úthverfin á skjánum. Þættirnir Boltamömmur eiga sér stað í úthverfinu Seltjarnarnesi sem Þórbergur Þórðarson lýsti svo: „Seltjarnarnesið er lítið og lágt, lifa þar fáir og hugsa smátt. Aldrei líta þeir sumar né sól, sál þeirra‘ er blind eins og klerkur í stól.“ Seltjarnarnesið er minnsta sveitarfélag landsins að flatarmáli, hefur síðustu áratugi verið eitt af vígjum íhaldsmanna sem ríghalda í sjálfstæði sitt frá Reykjavík og þykir eftirsóttur staður til að búa á. Bærinn er því ágætlega frjór jarðvegur fyrir sjónvarpsþátt. Boltamömmur tækla jafnframt fyrirbæri sem hefur farið vaxandi á síðustu árum hérlendis, yfirgengileg afskipti foreldra af íþróttum barna sinna sem birtast í óheilbrigðum samskiptum við þjálfara, samkeppni við aðra foreldra og óraunhæfar væntingar í garð barna sem eiga að skara fram úr. Þættirnir samþætta þetta tvennt með því að fjalla um hvernig úthverfaforeldrar fá útrás fyrir vandamál sín, gremju og bældar þrár í fótbolta barna sinna. Pirrandi fyrrverandi, brjáluð systir og heillandi yfirþjálfari Áhorfendur kynnast Diljá sem mætir í upphafi seríunnar á fótboltaleik hjá dóttur sinni eftir langa fjarveru. Ástæðan er að hún er nýskilin við fyrrverandi mann sinn, Eirík, sem hafði séð um íþróttaiðkun dóttur þeirra. Diljá er í molum eftir skilnaðinn og veit ekki hvað hún á að gera við sig. Kristín Þóra, sem er vafalaust ein okkar öflugasta leikkona, fangar vel vonleysið, vandræðaleikann og óöryggið hjá miðaldra konu á kaflaskilum. Boltamömmur er enn ein serían frá Símanum. Læknirinn Eiríkur er töluvert brattari enda skilnaðurinn að hans frumkvæði. Samt virðist hann eiga erfitt með að sleppa takinu og mætir reglulega óbðinn á gamla heimilið til að sinna garðinum og hlúa að lyngrósinni. Þorvaldur Davíð er stórkostlegur í hlutverki Eiríks sem er smeðjulegur, peppandi og óþolandi jákvæður. Þrátt fyrir að leikararnir standi sig bæði vel er áþreifanlega lítil kemistría eða almennilegur núningur milli hjónanna. Manni líður eins og þau séu hálfókunnug frekar en fyrrverandi hjón. Systir Diljár, ljósmóðirin og fyrrverandi landsliðskonan Kara, er líka mætt á leikinn en þær eru algjörar andstæður. Diljá er kurteis og lítillát en Kara skapstór yfirgangsseggur með sorakjaft. Hún öskrar áfram dóttur sína frá hliðarlínunni, hreytir ónotum í mótherjana og grefur undan ungum þjálfaranum Hönnu Borg (Iðunn Ösp) sem vill að stúlkunum líði vel á vellinum. Kara er gift prúða flautuleikararnum Hilmi (Ólafi Egils) sem er orðinn þreyttur á hegðun eiginkonunnar. Ólafur Egils er sannfærandi í hlutverki hins jarðtengda Hilmis (fyrir utan flautuleikinn) með skemmtilegum blæbrigðum og frösum. Lára stendur sig ágætlega í hlutverki Köru en karakterinn er skrifaður svo ýktur að hann verður hálf ótrúlegur, sérstaklega því hún flakkar milli yfirgengilegs brjálæðis á vellinum og þess að vera ágætlega sjálfsmeðvituð heima fyrir. Kara æsir sig á hliðarlínunni. Sagan hrekkur í gang þegar Diljá er sjálfkjörin sem nýr formaður foreldrafélagsins í Gróttu og reynir að brydda upp á nýjungum á borð við hollara nesti og skemmtileg myndbönd á TikTok. Auðvitað gengur það brösuglega, foreldrarnir hafa ekki raunverulegan áhuga á að taka þátt í undirbúningnum og TikTok-ið springur framan í hana. Foreldrafundirnir bjóða oft upp á gott grín, óþægilega hreinskilni Eiríks og forréttindablindu efnaðra foreldra sem skeyta engu um að aðrir hafi ekki jafn mikið milli handanna. Samhliða formennskunni reynir Diljá að enduruppgötva sjálfa sig sem kynveru. Þar koma við sögu bæði Breki Olsen, heillandi og sjálfumglaður yfirþjálfari Gróttu, og Svansí, fullkominn matarbloggari sem Diljá dýrkar. Á sama tíma er Kara staðráðin í að losna við þjálfara stúlknanna og beitir ýmsum brögðum til þess. Við þetta bætist þriðja fléttan um nafnlausan netníðing sem fer að senda dóttur Köru gróf skilaboð á netinu og á að halda ákveðinni spennu gegnum seríuna. Fjölskylduvæðing, núningsleysi og slappur endir Líkt og með flest það sem kemur úr ranni Atlavíkur eru þættirnir afar fagmannlega gerðir. Myndataka Bergsteins Björgúlfssonar er góð fyrir sinn snúð, staðarval og leikmynd skapa sannfærandi úthverfaheim og búningarnir eru hæfilega fjölbreyttir. Leikhópurinn skilar heilt yfir sterkri frammistöðu og þar standa upp úr Kristín Þóra í aðalhlutverkinu og sterku aukaleikararnir Þorvaldur Davíð, Ólafur Egils og Mikael Kaaber. Þættirnir eru ekki leiðinlegir áhorfs og innihalda nokkra góða grínspretti. Hins vegar tekst aldrei að selja manni dramað því það er ekki tekið alla leið og grínið ekki nógu beitt til að halda restinni á floti. Þættirnir lofa góðu í byrjun með þráðum um tvöfalt líf persóna. Sérstaklega stendur þar upp úr samband Diljár við hinn sjálfumglaða Breka sem er ekki allur þar sem hann er séður. Anna Svava, Birgitta Birgis og Aðalbjörg Árnadóttir í hlutverkum æstra boltamamma. Fókusinn á fótbolta stelpnanna, afskipti Köru af liðinu og ýmis bolabrögð vekja hins vegar litla spennu og grínið verður eintóna eftir því sem á líður með leiðigjörnum senum af blótandi foreldrum. Þráðurinn um nafnlausa netníðinginn verður sömuleiðis fyrirsjáanlegur því það koma fáir kandídatar til greina. Þrátt fyrir að bjóða upp á töluverða möguleika og safaríka niðurstöðu er leyst úr þeim þræði á algjörlega antíklímatískan hátt. Mikael Kaaber sýnir á sér skemmtilega hlið í þáttunum. Á heildina litið vantar áþreifanlega spennu milli karaktera, hegðun Köru hefur litlar sem engar afleiðingar lengst af. Þegar systurnar fá loksins að kenna á því er manni nokk sama og því snúið upp í farsælan endi. Af hverju er engin spenna milli systranna? Ýjað er að því að þær hafi alla tíð att kappi og móðir þeirra (skemmtilega leikin á Facetime af kaffibrúnni Hönnu Maríu Karlsdóttur) hafi gert upp á milli þeirra. Þessi núningur skilar sér aldrei til áhorfenda þannig að þegar kemur að dramatísku uppgjöri systranna við fjölskylduarfinn í lokin veitir það enga hreinsun eða fullnægingu. Annað sem ergir mann við áhorfið er tónn sem hefur einkennt mikið af íslensku gríni í sjónvarpi síðustu ár og mætti kalla fjölskylduvæðingu. Höfundar og framleiðendur virðast í meiri vilja ná til breiðasta mögulega markhóps svo efnið er látið henta bæði fullorðnum og börnum. Þetta er hvað skýrast í gamanþáttunum Iceguys sem hafa gengið í þrjár þáttaraðir á Sjónvarpi Símans en líka í nýlegu þáttaröðinni Brjáni á Sýn. Fjölskylduvæðingin felst í bitlausu aulagríni og tregðu við að taka hlutina alla leið. Í Boltamömmum hefur þessi nálgun þau áhrif að maður fær ekki kraftmikla fullorðinslega dramatík, bitastæða spennu eða beittan húmor heldur miðjumoð. Serían er fínasta fjölskylduskemmtun, eitthvað sem gamla settið getur horft á með bæði unglingunum og yngri krökkum. En miðað við hvað hugmyndin og persónurnar lofuðu miklu þá veldur hún dálitlum vonbrigðum. Niðurstaða Boltamömmur eru fagmannlega gerð fjölskylduskemmtun en ekki mikið meira en það. Sterkur aðalleikur Kristínar Þóru er hjartað í seríunni og skilar aukaleikararnir Þorvaldur Davíð, Ólafur Egils, Mikael Kaaber og Anna Svava góðri frammistöðu Lykilmystería seríunnar vekur takmarkað spennu og er á endanum kauðslega afhjúpuð. Þá er tilfinnanlegur skortur á núningi, kergju og dramatík milli persóna og húmorinn ekki nógu kröftugur til að bæta upp fyrir það.
Gagnrýni Magnúsar Jochums Bíó og sjónvarp Síminn (Ásar) Kvikmyndagerð á Íslandi Seltjarnarnes Tengdar fréttir Dillandi danskur Bond til bjargar blokkinni Dönsk leyniþjónustukona flytur í íslenska blokk til að komast í kyrrð og ró en getur ekki setið auðum höndum og fer að vasast í málum íbúa með misjöfnum árangri. Danska konan er ferskur andblær í íslensku sjónvarpi með skemmtilegum stílbrögðum, kostulegum hasarsenum og stjörnuframmistöðu Trine Dyrholm. 11. febrúar 2026 07:02 Barnaefni fyrir fullorðna Eftir hörmulega slappa aðra seríu tekst Ísgaurunum að rétta kúrsinn í þeirri þriðju með beittara gríni og góðum gestaleikurum. Stöku snilldarbrandarar grafast þó undir loftkenndri sögu. Ísgaurarnir virðast fastir í millibilsástandi milli barnaefnis og gríns fyrir fullorðna. 12. september 2025 07:07 Meðalmennskan plagar Brján Þrátt fyrir frumlega hugmynd, ágætis leikara og sterka byrjun renna grínþættirnir Brjánn fljótt út í sandinn. Þar vegur þyngst skortur á almennilegu gríni og óspennandi framvinda. 28. október 2025 07:03 Mest lesið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Fleiri fréttir Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira
Dillandi danskur Bond til bjargar blokkinni Dönsk leyniþjónustukona flytur í íslenska blokk til að komast í kyrrð og ró en getur ekki setið auðum höndum og fer að vasast í málum íbúa með misjöfnum árangri. Danska konan er ferskur andblær í íslensku sjónvarpi með skemmtilegum stílbrögðum, kostulegum hasarsenum og stjörnuframmistöðu Trine Dyrholm. 11. febrúar 2026 07:02
Barnaefni fyrir fullorðna Eftir hörmulega slappa aðra seríu tekst Ísgaurunum að rétta kúrsinn í þeirri þriðju með beittara gríni og góðum gestaleikurum. Stöku snilldarbrandarar grafast þó undir loftkenndri sögu. Ísgaurarnir virðast fastir í millibilsástandi milli barnaefnis og gríns fyrir fullorðna. 12. september 2025 07:07
Meðalmennskan plagar Brján Þrátt fyrir frumlega hugmynd, ágætis leikara og sterka byrjun renna grínþættirnir Brjánn fljótt út í sandinn. Þar vegur þyngst skortur á almennilegu gríni og óspennandi framvinda. 28. október 2025 07:03