Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Eiður Þór Árnason skrifar 11. október 2026 04:00 Nanna segir það mikilvægt að leyfa sér stundum að líða illa og að tónlistarmenn sem séu að taka sín fyrstu skref fylgi innsæi sínu. martin Það er ekki eintóm gleði á tónleikaferðalögum hljómsveitarinnar Of Monsters and Men en í upphafi yfirstandandi túrs veiktist Nanna Bryndís Hilmarsdóttir með þeim afleiðingum að vísa þurfti tónleikagestum á brott. Þá voru um sex ár liðin frá síðasta tónleikaferðalagi þeirra. „
Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt að koma svolítið svona heim og saman og mikið stress og ég bara varð veik. En það var enginn tími til að vera veikur, maður var í æfingum og bara áfram gakk. Við sem sagt byrjum í Toronto og ég veit að ég er að missa röddina,“ segir Nanna. Vísir settist niður með Nönnu og Ragnari Þórhallssyni í tilefni af því að fimmtán ár eru liðin frá því að My Head is an Animal, fyrsta plata Of Monsters and Men, kom þeim á heimskortið. Þau ræða meðal annars skiptin þar sem aðdáendur gengu of langt, hvers vegna það er mikilvægt að leyfa sér að líða illa, hvort heimsfrægð ráðist af heppni og hvernig gervigreindartól hafa raskað tónlistarmarkaðnum. Þetta er síðasti liðurinn í lengri umfjöllun um hljómsveitina en í fyrri hlutum ræddu Nanna og Ragnar til að mynda um samband þeirra og ásökun um lagastuld. Næsta laugardag er ár liðið frá því að nýjasta plata þeirra, All is Love and Pain in the Mouse Parade, kom út og efna þau í tilefni af því til stórtónleika í Kaplakrika. En aftur að veikindunum sem óttast var að gætu haft varanleg áhrif á raddbönd Nönnu. Þegar rödd hennar fór að gefa sig fyrir um ári leitaði hún til læknis sem skipaði henni að hvíla raddböndin og segja ekki orð. „Ég hlýði því og reyni að taka því rólega.“ Síðar hafi hún prófað að syngja í hljóðprufu fyrir tónleikana og talið að þetta gæti sloppið til. Hún hafi svo reynt aftur hálftíma fyrir tónleikana. „Það kom eitthvað en ekki nótan sem ég ætla að syngja. Ég er að syngja og röddin bara fer eitthvert.“ Klippa: Slepptu fram af sér beislinu í Bandaríkjunum Úr varð að sveitin þurfti að hætta við uppselda tónleikana í Toronto í Kanada eftir að fólk var komið inn í hús. „Þetta var hræðilegt en strákarnir voru alveg geggjaðir. Þeir fóru út án mín og tóku nokkur lög og bróðir minn var þarna og spilaði á trompet og það var geggjuð stemning. Þeir létu bara fólk syngja með. Svo komum við í lok túrsins og spiluðum aftur fyrir fólk sem hafði þá misst af öllu sjóinu.“ Leið mjög illa „Það er rosalegt að lenda í þessu og manni líður svo illa. En ég meina þegar maður verður veikur þá verður maður bara veikur.“ Erfitt sé að taka sér veikindadaga þegar verið sé að búa sig undir að fara á svið. Eftir útgáfu nýjustu plötunnar spilaði hljómsveitin í og við fjölda plötuverslana í Bretlandi. Hér sjást þau í Liverpool. Martin Hljómsveitin afboðaði tvenna tónleika vegna veikindanna og var eftir það með nokkurra daga hlé í dagskránni áður en hún náði að spila í New York. „En þetta var mjög tæpt. Ég var að láta mynda raddböndin og þeir voru alveg smeykir út af því að ef ég myndi syngja of snemma þá gæti maður valdið varanlegum skaða.“ Gripið hafi verið til allra tiltækra ráða og hún bæði fengið stera og vökvagjöf í æð. „Mér leið ógeðslega vel út af því að maður fær svo mikið af drasli en það bara kom ekki orð. Þetta er rosa skrýtið og smá ógnvekjandi. Þetta er smá martröð því maður veit ekki hvenær þetta er búið. Og allt þetta fólk er mætt á tónleika en þetta blessaðist allt.“ Það var erfitt fyrir Nönnu að aflýsa tónleikunum. Martin Skrýtnu Íslendingarnir sem vildu hætta með útgáfurisanum Þið segist njóta sjálfstæðis í dag en hvernig var þetta fyrst? Þið eruð ung þegar þið byrjið, farið inn í stórt erlent plötufyrirtæki og eruð með mikið batterí á bak við ykkur. Hvernig var upplifunin þá samanborið við nú? Ragnar: „Við vorum svona skrýtna íslenska bandið inni í [plötufyrirtækinu] Republic sem er risastórt og með Taylor Swift og eitthvað. Það var aldrei það slæmt en maður fann það með tímanum að þetta varð svolítið stirðara. Plötufyrirtæki hefur ekki alltaf það sama milli handanna og getur ekki leikið sér með allt. Þá eru þessir hausar bara meira að skoða línuritin, eins og einhverjir verðbréfasalar. Það er ekki eitthvað sem þú gerir með list. Af því að allt í einu geturðu séð í rauntíma þegar þú gefur út lag hvernig því gengur og það er ekki gott umhverfi fyrir tónlistarmann. Maður fann það að þetta var ekki lengur rétti staðurinn fyrir okkur.“ Ragnar í Bologna á Ítalíu.Martin Nanna: „Tónlistarbransinn er að breytast svo svakalega mikið. Við mynduðum sambönd við fólk, eins og innan Universal [eiganda Republic], sem vann mjög náið með okkur. Svo er bara öllum sagt upp af því að það er ákveðin kreppa og þau eru með aðrar áherslur. Þannig að það fólk er ekki lengur til staðar. Það skiptir alveg máli í hvaða umhverfi þú ert en það er aðallega fólkið sem þú ert að vinna með. Þannig að við vorum allt í einu kannski í þeirri stöðu að við þekktum engan. Þá er kannski bara kominn tími til að breyta til og við fundum það svolítið sterkt í okkur að það var kominn tími til.“ Meðlimir Of Monsters and Men stilla saman strengi í Brighton á Englandi.Martin Séu enn þá vinir Of Monsters and Men voru samningsbundin hjá plötufyrirtækinu Republic Records þar til þau gáfu út sína fjórðu hljóðversplötu. Eftir að Fever Dream, þriðja plata þeirra, kom út árið 2019 hófust viðræður um að slíta samningnum og fór svo að þau gáfu út þá nýjustu, All Is Love and Pain in the Mouse Parade, á eigin vegum. Ragnar: „Í Covid-pásunni okkar tókum við svolítið til í svona málum og þetta var eiginlega fyrsti tíminn hjá okkur þar sem við gátum bara aðeins stigið til baka í svolítið langan tíma og kannski aðeins farið yfir hvert við vildum stefna. Það var mikilvægt fyrir okkur aðeins að breyta nokkrum hlutum og gera þetta að spennandi umhverfi. Af því maður breytist líka, eitthvað sem er spennandi þegar þú ert 25 er ekki lengur spennandi þegar þú ert 35 og þú þarft að fá annað úr hlutunum.“ Uppsagnarferlið hafi gengið betur en margur hefði getað ímyndað sér. Ragnar: „Ég get ekki sagt neitt nema jákvætt. Þetta var bara mjög fallegt allt. Ég kann að meta hvernig þeir koma til móts við okkur.“ Stefnt er að því að ljúka tónleikaferðalaginu í desember og ætlar sveitin að leggjast í dvala eftir það. Martin Nanna: „Já, þetta var ekki hryllingssaga eins og stundum getur gerst. Þetta var gert allt saman af mikilli virðingu á báða bóga held ég.“ Ragnar: „Þetta var svona eins og samband sem báðir aðilar eru til í að komast úr. Við erum alveg vinir sko,“ bætir hann við og hlær. Platan All Is Love and Pain in the Mouse Parade kom út fyrir um ári. Henni er dreift af Virgin Music Group sem heyrir líkt og Republic Records undir gríðarstóra samstæðu Universal Music Group. Því má segja að sveitin hafi ekki farið langt eftir slitin. Ragnar: „Við vorum með eina manneskju þaðan sem hjálpaði okkur með þetta og þetta var bara mjög gaman. Það er miklu meira sem maður þarf að gera sjálfur.“ Hljómsveitin spilaði í St Mary kirkjunni í Nantwich á Englandi í fyrra.Martin Þetta hafi verið mikil vinna en um leið skemmtilegt fyrir hljómsveitina að læra inn á allt það sem þurfi að huga að þegar maður er ekki lengur með stuðning stórs útgáfufyrirtækis. Um leið hafi þau þurft að fjármagna gerð nýju plötunnar að öllu leyti sjálf en þar hjálpi að þau eigi sitt eigið hljóðver sem nefnist Skarkali. Universal Music Group keypti Öldu Music árið 2022 og um leið stóran hluta íslensks tónlistararfs. Vísir fjallaði ítarlega um þýðingu viðskiptanna á sínum tíma. Allt hrunið ef þau hefðu fetað í fótspor annarra Lengst af hafa tónlistarmenn sem ganga til samninga við stór útgáfufyrirtæki yfirleitt þurft að láta eftir eignarhald á frumupptökum tónlistar sinnar (e. master recording) í skiptum fyrir fjárhagslegan og markaðslegan stuðning. Þessu fylgdi yfirleitt að útgefandinn tók langstærstan hluta þeirra tekna sem hlutust af sölu upptakanna og hafði mikla stjórn á því hvernig þær voru notaðar. Þetta fyrirkomulag hefur orðið fyrir auknum þrýstingi eftir að streymisveitur gjörbreyttu tekjum af sölu tónlistar og kostnaður við tónlistarútgáfu lækkaði. Í dag er algengt að listamenn gefi sína tónlist út sjálfir, haldi eignarhaldinu á upptökunum, semji um dreifingu þeirra í stað þess að gera hefðbundinn plötusamning og haldi um leið hærra hlutfalli af tekjunum. Á sama tíma eru margir tónlistarmenn enn fastir í eldri samningum sem auðveldara var að réttlæta þegar plötufyrirtæki lögðu mikinn kostnað í útgáfu og dreifingu hljómplatna. Nanna og Arnar Rósenkranz Hilmarsson, einn fimm liðsmanna sveitarinnar, í Red Rocks í Colorado þar sem þau spiluðu.MARTIN Of Monsters and Men hafa haldið útgáfuréttinum að sinni tónlist frá upphafi. Nanna: „Það er ekki venjulegt á þessum tíma. Maður er svo þakklátur fyrir það. Við náðum að semja um það á sínum tíma að halda masternum. Á þeim tíma voru oft gerðir svona 360 gráðu samningar þar sem þeir taka masterinn þinn, þeir taka af varningnum þínum, þeir taka af tónleikunum þínum. Þeir taka af öllu sem þú gerir og þeir samningar í dag myndu aldrei nokkurn tímann ganga. Þá gæti enginn tónlistarmaður starfað í því umhverfi.“ Hér vísar Nanna til þess hvernig tekjur tónlistarmanna af tónlistarsölu hafa minnkað eftir að fleiri hættu að kaupa hljómplötur og í stað þess hlusta á tónlistina á streymisveitum. „Það þótti bara eðlilegt á sínum tíma en við gerðum ekki þannig samning. Þetta hefur örugglega gert það að verkum að við getum starfað við þetta og að þetta fúnkerar.“ Ragnar: „Það hefði allt hrunið hjá okkur um leið og Spotify kom ef við hefðum gert þannig samning. Og það gerði það fyrir marga. Þannig að þetta slapp ágætlega.“ Arnar á trommunum á Sansan-hátíðinni. Martin Sveitin hafi verið heppin með það að hafa gott teymi fólks í kringum sig hér heima og erlendis sem telji meðal annars lögfræðinga. Nanna: „Við vorum bara einhverjir krakkaskítar.“ Þrátt fyrir að hafa einungis verið á aldrinum 21 til 24 ára hafi þau sjálf áttað sig á því hvers virði það væri að halda útgáfuréttinum í stað þess að framselja hann til plötufyrirtækisins eins og algengt er. Þarna hafi hjálpað að fyrsta platan, My Head is an Animal, var búin að ná vinsældum á Íslandi þegar þau fóru að semja við erlend plötufyrirtæki og að fleiri en eitt þeirra hafi sýnt þeim áhuga. Nanna: „Við gátum svolítið lagt línurnar sem er ekki eitthvað sem allir geta gert.“ Nanna bætir við að þau hafi oft verið með uppsteyt í gegnum tíðina þegar þau fengu skýringuna: „Þetta er bara svona.“ „Það er smá Íslendingurinn í manni sem segir: „En þetta er bara fáránlegt. Þetta er ekki rétt.““ Hefðu ekki lifað það af að feta í fótspor annarra listamanna Liðsmenn Of Monsters and Men þekkja bæði tímann fyrir og eftir útbreiðslu tónlistarstreymisveitna. Nanna. „Spotify og allt þetta er alveg galið fyrirbæri fyrir tónlistarmenn.“ Sveitin spilaði fyrir fjölda fólks í Prag.Martin Ragnar tekur undir að tekjumódel streymisveitna sé ekki eðlilegt. Spotify hafi verið brautryðjandi, komið sér vel fyrir á markaðnum og á vissan hátt lagt línurnar sem séu „ekki réttar“. Fyrir tilkomu streymisveitna hafi tekjum af tónlist oft verið skipt á milli listamanna og tónlistarmanna með ósanngjörnum hætti þar sem hærra hlutfall fór til útgefandans, einkum þegar um var að ræða stærri plötufyrirtæki. Svo hafi streymisveitur bæst við sem nýr milliliður sem taki „rosalega stóran hluta af þessu“. Þetta hafi í mörgum tilvikum flækt samband listamanna og útgefenda. „Kökubitinn sem verið er að berjast um er orðinn minni,“ bætir hann við. „Ég hélt að þetta myndi verða búið að lenda á aðeins réttari stað en það virðist ekki vera.“ Sumar streymisveitur, á borð við Tidal og Deezer, standi sig betur gagnvart listamönnum en það breyti því ekki að Spotify sé risinn í herberginu sem leggi oft línurnar. Gullöldin liðin Nanna rifjar upp augnablikið þegar hljómsveitin var boðuð á fund og Spotify kynnt fyrir þeim sem „nýtt æðislegt fyrirbæri“. „Ég er með svo sterka minningu af því þegar þetta bara breyttist.“ Minna sé um sölu geisladiska í dag en þeir og vínilplatan virðist þó vera að eiga endurkomu hjá afmörkuðum hópi fólks. Hún bendir á að stóru útgáfufyrirtækin virðist ekki vera jafn áhrifamikil og þau voru hér áður fyrr. „Það er svolítið áhugaverð þróun þar hjá tónlistarfólki út af því að það eru rosalega margir sem eru að gefa út sjálfir og við gerðum það til dæmis á þessari síðustu plötu hjá okkur.“ Tilfærslan í tónlistarstreymi hafi hreyft við öllu kerfinu. Nanna kælir sig niður í Winnipeg í Kanada þar sem þau spiluðu.martin Þetta eru einhverjar krónur og aurar sem þið fáið fyrir hvert streymi frá Spotify. Svo eruð þið fimm í hljómsveit og deilið þessu á milli ykkar. Gengur þetta upp? Náið þið að lifa af ykkar tónlist á því tímabili sem líður milli platna? Ragnar: „Já, það hefur virkað fínt hjá okkur.“ Þau hafi notið góðs af því að lög, einkum af fyrstu plötunni þeirra, hafi komist inn á almenna topplista á sínum tíma. „Það heldur þessu streymi svolítið gangandi. Svo líka því fleiri plötur sem þú ert með, því meira kemur inn alls staðar. Þetta er bara fínt þar en það er ekki okkar helsta tekjulind. Það er meira þegar maður selur í bíómyndir og heldur tónleika, það er eiginlega aðaltekjulindin.“ „Það er ekki sama gullöldin í þessu eins og fyrir Spotify. 1990 upp að svona 2010 var alveg svolítið klikkað tímabil fyrir tónlistarmenn,“ bætir Ragnar við. „Þannig að jújú, þetta virkar allt.“ Það sé ótrúlegt að hugsa til þess hversu hratt tónlistarheimurinn hafi breyst. Nanna: „Það að vera tónlistarmaður í dag samanborið við það þegar við vorum að byrja er bara allt annar heimur. Þegar maður hefur verið að tala við fólk sem er að taka sín fyrstu skref og það er kannski að leita einhverra ráða þá segir maður bara að þetta er ekki sama landslag, þetta er allt öðruvísi.“ Ragnar: „Ég veit í rauninni ekkert hvernig það er að reyna að stíga sín fyrstu skref sem tónlistarmaður í þessu landslagi.“ Gervigreindin á uppleið Bæði hafa þau áhyggjur af innreið gervigreindar inn á svið tónlistar. Á síðustu árum hafa tól verið kynnt til leiks sem gera fólki kleift að nýta gervigreindarlíkön til að búa til tónlist með auðveldum hætti. Tæknifyrirtækin eru sökuð um að hafa þjálfað líkönin á áður útgefinni tónlist enda hefur mörgum tekist að fá eftirlíkingar af hinum þessum lögum eða rödd einstakra tónlistarmanna. Gervigreindartónlistin getur svo lent inni á streymisveitum á borð við Spotify. Nanna: „Það er verið að dæla inn gervigreindartónlist og tónlistarfólk sem fær mjög lítið nú þegar fyrir spilanir sínar er einhvern veginn að keppast við einhverja gervitónlist. Þetta er allt saman mjög undarleg þróun en við höfum talað um það að alltaf þegar hlutir færast meira í þessar áttir þá vill maður hugsa allavega að fólk muni leita frekar í það að mæta á tónleika og vilja fá alvöru upplifanir sem hreyfa við því og kannski eiga sér bara stað í þessu augnabliki. Þú ert aldrei að fara að upplifa sömu tónleikana tvisvar. Það er bara ekki hægt. Það er alltaf eitthvað í loftinu sem þú færð hvergi annars staðar.“ Benicàssim á Valensía á Spáni.Martin Ragnar: „Ég held að ef framtíðin lítur þannig út að það verði allt fullt af einhverjum gervigreindarlögum og tónlist úti um allt þá finnur fólk meiri þörf fyrir þessa alvöru tengingu. Þá opnast kannski fyrir að alls konar grasrótartónlist verði sýnileg, held ég.“ Fólki sem finnist þetta spennandi og auðvelt í dag verði líklega leitt á því þegar nýjabrumið er farið af. Það skipti máli þegar fólk hafi fyrir hlutunum. „Það er list að finna fyrir því hvað fór í þetta og ég held að það eigi eftir að skila sér alveg í framtíðinni, ef þetta fer eitthvað ýkt í hina áttina,“ bætir Ragnar við. „Þetta er ógnandi dót. Kannski verður Elon Musk stærsti tónlistarmaður í heiminum.“ Nanna: „Þá segir það ýmislegt um okkur sem mannfólk, þannig að við getum sjálfum okkur um kennt ef svo fer,“ skýtur Nanna inn í og hlær. Ragnar: „Ég held að þetta reddist allt. Þetta fer allt upp og svo lendir þetta einhvers staðar og jafnar sig. Segjum það.“ Nanna: „Það er rosalega mikilvægt að fólk hlusti á alvöru tónlistarfólk og sé að mæta á tónleika. Fólk mætir minna á tónleika en það er mjög mikilvægt að gera það og styðja við tónlist og listir og allt það. Við kjósum hvað við eyðum tímanum okkar í og styðjum.“ Tónleikasókn á niðurleið Ragnar og Nanna segjast hafa heyrt af því að margir tónlistarmenn eigi erfiðara með að selja inn á tónleika en hér áður fyrr. Ragnar: „Áður en við fórum að túra þá voru margir tónlistarmenn stundum að hætta við tónleikaferðalög og fólk sem var að selja upp túra var núna ekki að selja upp túra. Maður var svona ragur við að fara inn í þetta aftur. Kannski ekki ragur en maður vissi ekki alveg hvað maður var að fara út í eftir að hafa verið í burtu í sex ár frá þessu. En svo hefur það gengið rosalega vel og við erum rosalega þakklát fyrir það. En það er ekki sama saga alls staðar.“ Í Gardone Riviera á Ítalíu. Martin Nanna segir það spila inn í að tónlistarstöðum hafi fækkað, bæði hér og erlendis, og ýmsar breytingar eftir heimsfaraldur Covid-19 hafi leitt til þess að það er orðið kostnaðarsamara að fara í tónleikaferðalag en áður. Ragnar segist hafa skilning á því að tónleikar og aðrar listir geti fallið niður forgangslistann þegar efnahagsleg staða fólks er krefjandi. „Þegar það er harðara þarna úti þá fókusar maður kannski meira á nauðsynjar. En svo fattar maður að list er nauðsyn í grunninn til þess að stuðla að góðri andlegri heilsu og fá útrás, þannig að það er þarna einhvers staðar.“ Margt gengið á í tónleikaferðalögum Ýmislegt minnistætt hefur gerst á rúmlega fimmtán ára ferli hljómsveitarinnar og þegar þau eru beðin um að rifja eitthvað upp leiðir Ragnar hugann beint að tónlistarhátíð í Bandaríkjunum og tónleikum þegar þau voru rétt að byrja. Ragnar: „Það eru augnablik þarna fyrst á ferlinum þegar þú hugsar: „Hvað er að gerast á þessum tónleikum? Af hverju er allt þetta fólk komið?“ Maður fékk svona líkamlega tilfinningu, smá svona: „Af hverju eru svona margir að stara á mig?“ Í fyrsta sinn í lífi mínu eru svona margir að stara á mig, sem er klikkuð tilfinning og ég man hana alltaf. Ég man þegar við byrjuðum að spila og það kom bara hjörð af fólki.“ Hann líkir þessu við senu úr kvikmyndinni 300 eða Gladiator. „Mér leið eins og það væri svona her að koma sem var ótrúlega ógnandi tilfinning. Maður er bara eitthvað að spila þarna og svo kemur skari af fólki.“ Nanna: „Hvað vilja þau?“ skýtur hún glettnislega inn í. Sveitin hefur ferðast heimshorna á milli síðastliðið ár.Martin Nanna dugleg að detta af sviðinu Þá rifja þau upp nýlegra atvik þar sem Nanna sló út rafmagninu á Osheaga-hátíðinni í Montreal í Kanada. Ragnar: „Við erum í síðasta laginu og Nanna ætlar einhvern veginn að príla niður af sviðinu. Hún fer alltaf í mannfjöldann í síðasta laginu og hún snertir eitthvað ljós á sviðinu og allt í einu fer rafmagnið af tónlistarhátíðinni. Það fór bara allt niður í síðasta laginu okkar og við þurftum að labba af sviðinu.“ Rafmagnið hafi áður farið af á þeirra eigin tónleikum og þau gripið til þess ráðs að spila órafmagnaðar útgáfur af lögunum sínum í staðinn. Ragnar: „Það bjó til geggjað augnablik. Erfiðu augnablikin eða það þegar eitthvað fer úrskeiðis býr oftast til einhverjar skemmtilegar minningar.“ Nanna tekur undir og segir að oft fylgi því einhverjir töfrar. Baksviðs á Sansan-hátíðinni í Benicàssim í Valensíu á Spáni. Martin Ragnar segir að flest eftirminnilegustu augnablikin tengist Nönnu. Ragnar: „Ég sá hana bara steypast fram af á einum tónleikum. Hún hljóp út í uppklappi, var eitthvað að espa mannfjöldann, hrasaði um snúru og fór bara beint niður í gryfjuna. Einhvern veginn var í lagi með þig.“ Nanna: „Þetta sleppur alltaf einhvern veginn.“ Ragnar: „Þannig að það er oft eftirminnilegt þegar Nanna slasar sig eða dettur.“ Nanna: „Ég er mjög dugleg við það. Ég er líka alltaf með einhverja stæla. Ég er alltaf í einhverju stuði.“ Ragnar: „Þú þarft alltaf að vera eitthvað á hreyfingu.“ „Svo var rosa gaman um daginn þegar við spiluðum á Corona Capital í Mexíkó. Við höfum aldrei spilað í Mexíkó og þegar maður hefur aldrei spilað í landi þá veit maður ekki hvað bíður manns. Þar var bara sturlaður hópur, allir með í þessu, með ljósin uppi og skiltin og allir að syngja með öllum lögunum. Það er svo gaman að koma til baka eftir sex ár og spila á nýjum stað og fá þetta. Þetta fyllir mann alveg og þetta var alveg sterkt augnablik,“ bætir hann við. Hér þurfti Ragnar að hlaupa í klippingu en Nanna býðst til að halda samtali sínu áfram við blaðamann. Aðdáendur stundum farið yfir mörk Þið eruð með dyggan aðdáendahóp um allan heim. Síður eins og YouTube og Reddit eru ekki endilega þekktar fyrir að hýsa uppbyggilegustu umræðurnar en þetta fólk virðist yfirleitt vera frekar jákvætt. Þegar þið gáfuð út síðustu plötuna ykkar lýstu sumir því að þetta væri eins og að hitta gamla vini aftur. Hvernig er það að hafa þetta samfélag? Nanna: „Það er geggjað. Ég er mjög fegin að það sé ekki fólk að hlusta sem er að vera eitthvað hatursfullt á netinu. Fólkið sem mætir á tónleikana okkar er líka held ég fólk sem er að leita að einhverri tengingu. Ég hef tekið eftir því að fólk er mjög opið og einlægt í sínu. Mér þykir mjög vænt um það.“ Nanna í Sheffield í Englandi.Martin Hafa aðdáendur einhvern tímann farið yfir strikið? Nanna: „Jájá, eða bæði og. Ég held að þetta sé svolítið áhugavert samband þegar þér líður kannski eins og þú þekkir einhvern rosalega vel út af því að þú fylgist með þeim á samfélagsmiðlum og þú ert búinn að hlusta á tónlistina og heyrir röddina þeirra. Þú ert með samband við tónlistina og það er kannski auðvelt að líða eins og þú þekkir einhvern miklu betur en einhver þekkir þig. Maður hefur alveg lent í ýmsu þar sem maður hugsar: „Ókei, þetta er kannski aðeins of.“ Ég hef fengið einhverja hluti senda heim til mín. Ég hef fengið mjög skrýtin skilaboð líka, sem er þá bara einhver veikur líka. Út af einhverju þá líður þeim eins og þau þekki þig og stundum halda þau að þau eigi í sambandi við þig, eitthvað sem á enga stoð í raunveruleikanum.“ Auk bréfa- og blómasendinga hafi Nanna einnig lent í því að fólk mæti heim að dyrum. „En ég er flutt þaðan.“ Lukkulega hafi ekkert mál verið svo alvarlegt að það hafi lent inni á borði lögreglu. Hún hafi lent í ýmsum óþægilegum atvikum en ekki liðið eins og öryggi hennar væri stefnt í hættu. Nanna: „Svo hefur fólk verið að elta mann út um allar trissur og allt það. Ég veit það ekki. En það hefur aldrei komist á þann stað að ég hef hugsað: „Jæja, núna þarf ég að fara að heyra í einhverjum.“ Maður veitir fólki líka smá náð með það að fólk er að eiga við alls konar en já, mér hefur aldrei liðið þannig.“ Án umboðsmanns Nýjasta hljóðversplata Of Monsters and Men kom út í október í fyrra og ber heitið All Is Love and Pain in the Mouse Parade. Þar leitar hljómsveitin aftur í grunninn eftir ákveðna tilraunastarfsemi á fyrri plötunni Fever Dream sem sá dagsins ljós árið 2019. Nanna segir að í þetta sinn hafi þau lagt upp úr því að hafa plötuna aðeins hrárri og að spilagleðin skili sér til hlustenda. Þau hafi notið aðstoðar vina og náinna samstarfsmanna en á tímabilinu var hljómsveitin hvorki með plötusamning né umboðsmann. Hljómsveitin spilaði fyrir uppseldu húsi í Los Angeles í Bandaríkjunum.Martin Nanna: „Það var engin tímapressa. Þetta var svolítið áhugavert tímabil fyrir okkur og í raun og veru höfum við ekki upplifað það að gera plötu á þennan hátt, nema kannski þegar við gerðum fyrstu plötuna okkar þar sem við þurftum ekkert að gefa þetta út þannig. Við vorum ekki samningsbundin og það var enginn sem sagði eitthvað svona: „Jæja, krakkar.“ Maður var að gera þetta svolítið á eigin forsendum sem var mjög mikilvægt fyrir okkur og gaman.“ Hún segir gaman að hugsa til þess að eftir allan þennan tíma séu enn einhverjir þræðir sem tengi saman fyrstu plötuna sem kom þeim á kortið og þá sem þau gáfu út núna síðast. „Maður hugsar: „Ókei, þetta er kannski DNA-ið í hljómsveitinni okkar en svo er líka svo margt sem er búið að breytast og þróast og svona. Það er ótrúlega gaman að geta horft svona til baka og sjá tímabilin sem maður var á.“ Sveitin naut sín vel í Prag. martin Leðurblaka sem vilji halda í það góða Nanna og Ragnar semja oft texta við lög sveitarinnar í sameiningu og þykir henni sérstaklega vænt um viss lög á nýju plötunni. Þeirra á meðal er lagið Fruit Bat. „Þetta er lag um í raun og veru hvað kveðjustundir geta verið sárar en fallegar. Við tölum um að upplifa sig sem þessa leðurblöku sem vill halda í það fallega og fallegu augnablikin og allt það. Þetta er lag um það að taka því góða með því slæma, að þetta svona helst allt í hendur einhvern veginn,“ segir Nanna. „Mér finnst bara svo rosa gaman að spila það. Á tónleikum fáum við tækifæri til að láta lagið stækka og stækka og stækka. Það byrjar rólega og það er mikil nánd og svo brýst það út í eitthvað landslag. Mér finnst það lag vera voða mikið við líka. Það eru þessar andstæður. Maður fær svo mikla útrás við að spila á tónleikum þannig að mér finnst það gaman.“ Einnig þyki henni vænt um lögin The Actor og The End en fyrra lagið átti upphaflega að vera á sólóplötu Nönnu sem ber heitið How to Start A Garden. Í The End hafi hún og Ragnar skapað sögu um einstakling sem sé búinn að aftengjast veruleikanum. „Þetta er ákveðið samtal á milli hans og mömmu hans í raun og veru.“ Textinn minni á söguþráð kvikmyndarinnar Don‘t Look Up þar sem vísindamenn reyna að vara fólk við yfirvofandi loftsteini en þeim gengur misjafnlega að sannfæra fólk um hættuna sem stafar af honum. „Er hann að koma? Er þetta að gerast? Skiptir þetta einhverju máli? Þetta er svolítið það sem er að gerast oft í heiminum núna. Eins og við vorum að ræða gervigreindina áðan, sjórinn er að hitna og það er allt í hakki en æji, þurfum við að breyta einhverju? Þetta lag er svolítið það. Þetta er einhver sem er svolítið búinn að aftengja sig veruleikanum og lagið byrjar á því að hann heyrir í útvarpinu að heimurinn sé að enda og hann segir bara „ókei“, fær sér ristað brauð og heldur áfram með lífið.“ „Ótrúlega niðurdrepandi,“ bætir Nanna við og hlær. Stundum þurfi að leyfa sér að líða illa Ýmis þemu birtast í textum Of Monsters and Men og eitt þeirra eru lýsingar á flóknu tilfinningalífi með sínum hæðum og ekki síst lægðum. Í lögum á borð við Phantom, This Happiness og Barefoot in Snow sem spanna feril sveitarinnar er til að mynda sungið um það hvernig hamingjan getur virkað fjarlæg og torveld. „Oh, with all this time wasted and all this time goneYou are still waitin'on meOh, but if I could choose, I would choose not to feel'Cause I am hardly ever happyI am hardly ever happy“ – Úr laginu Phantom (Skrifað 2005, útgefið 2022) „[...]Now I'm letting go of letting goI feel the air light up when I'm aloneWhen I'm under a domeIt's the only way I knowIt's cake to not feel great when you're in a stormThis happiness is hell on earthSomebody better save meThis happiness is hell on earth“ – Úr laginu This Happiness (Útgefið 2022) „[...]I wish I was happyI wish I was drippin' with joyIt's so hard to be happyIt's so hard to be drippin' with joy“ – Úr laginu Barefoot in Snow (Útgefið 2025) Kemur þetta úr ykkar reynsluheimi, er þetta saga sem þið eruð að spinna eða er þetta blanda af báðu? Nanna: „Þetta er alveg alls konar. Þetta er alveg bæði. Það er alltaf eitthvað, hugsa ég, í svona lögum sem maður fær úr sínum eigin reynsluheimi. En maður er ekki alltaf að segja alveg satt heldur í svona textum.“ „Þetta er bara eins og að skrifa sögu eða mála mynd, litirnir eru ekki alveg svona skærir. Þú býrð til ákveðið umhverfi og það er líka eitthvað við það í textum að leyfa sér þetta eins og í This Happiness. Sum lög eru frekar svona sorgleg og það gæti skilist þannig að maður eigi hræðilega bágt,“ segir hún og hlær. „En stundum þarf maður að leyfa sér að líða illa og segja það. Maður segir það í texta og svo er það mjög berskjaldandi þegar maður gefur það út og leyfir öllum að heyra en svo er líka held ég svolítið gott fyrir fólk að grípa það sjálft og þegar þau eru ekki á toppnum þá er kannski til eitthvað lag sem endurspeglar það.“ Finnst þér mikilvægt að fólk sem hlustar geti speglað sig í lagatextunum og fundið fyrir samkennd? Nanna: „Mér finnst það alveg vera hluti af þessu en það er ekki endilega eitthvað sem ég hugsa um þegar maður er að semja. Þá er maður ekki að pæla í neinu. Maður má eiginlega ekkert hugsa um það að maður sé nokkurn tímann að fara að gefa eitthvað út því að þá held ég að maður myndi ekkert gefa neitt út. Þannig að maður er bara svolítið í sínum eigin heimi og ekkert að pæla í því hvaða áhrif það hefur á fólk. En svo auðvitað þegar maður gefur þetta út og fólk er með sínar eigin tengingar þá finnst mér það alveg fallegt.“ Þá sé það einnig fallegt þegar lög samtvinnast kaflaskiptum og nánum augnablikum í lífi fólks og eru til að mynda spiluð í brúðkaupum eða jarðarförum. „Að einhver sé að hlusta á þetta þegar hann á mjög erfitt. Mér þykir mjög vænt um það að þetta fái að vera hluti af daglegu lífi fólks. Það er ótrúlegt að búa til eitthvað sem fær að vera svona stór hluti af lífi fólks,“ bætir Nanna við. Hjálpa skrifin þér að vinna úr tilfinningum? Nanna: „Já, það gerir það. Ég skrifa mjög mikið og reyni að taka eftir. Ég held að skrif hjálpi mér að vera aðeins meira í augnablikinu, taka eftir hlutum og vera forvitin. Forvitnin er alveg grunntól í því að búa eitthvað til.“ Aldrei viljað vera neitt annað Hátt í tíu milljónir manna hlusta mánaðarlega á Of Monsters and Men á Spotify og hefur sveitin byggt upp aðdáendahóp sem hefur gert þeim kleift að lifa af list sinni. Nanna fékk gjöf í höfuðborg Taílands. Martin Nanna: „Maður er mjög þakklátur fyrir það að fólk sé að hlusta og að það sé stemning fyrir því sem maður er að gera. Þetta er það sem mig langaði alltaf að gera, að vera tónlistarmaður, og ég er mjög ánægð með að geta gert það í dag, sinnt því, verið að skapa og að fólk sé að hlusta og mæta á tónleika og svona. Ég get ekki beðið um meira.“ Heldur þú að það sé erfiðara að brjótast í gegn sem tónlistarmaður í dag eða bara öðruvísi? Nanna: „Ég veit ekki hvort það sé erfiðara eða léttara en ég held að það sé bara allt annað og þú ferð allt aðrar leiðir. Þegar maður er að spjalla við krakka sem eru að byrja núna getur maður deilt ákveðinni reynslu en þetta er ekki sami heimur.“ Nanna í Council Bluffs í Iowa-ríki í Bandaríkjunum.Martin Er eitthvað sem þú hefðir viljað gera öðruvísi ef þú horfir aftur? „Það er svo erfitt einhvern veginn að ætla að gera eitthvað öðruvísi. Ég sé ekki eftir neinu. Auðvitað er alveg eitthvað sem hefði getað farið betur eða verr en ég í raun og veru sé ekkert eftir neinu sem við erum búin að gera. Það fer bara allt eins og það á að fara. Ég er svo stóísk.“ Nanna telur að það sé einmitt eitthvað sem fólk þurfi á að halda í þessum geira og það eigi ekki síst við um ungt tónlistarfólk sem sé að taka sín fyrstu skref. „Ég finn það stundum þegar ég er að tala við fólk að það er stressað og ætlar að gera einhver plön og „Ef ég geri A, B, C þá mun þetta ganga upp. Ef ég tala við þennan þá gengur þetta upp og ef ég pósta svona mikið“ og allt það.“ Baksviðs í Tókýó í Japan. Martin „Það er engin uppskrift að því að eitthvað gerist. Það eina sem maður getur gert er að reyna að fylgja sínum áttavita. Hvenær líður þér vel, hvenær líður þér illa, fara alltaf í þá átt og vera samkvæmur sjálfum þér. Þótt það þýði að þú takir skref sem er ekki það rétta á blaði. Við erum búin að taka fullt af þannig skrefum, þar sem kannski á blaði hefðum við átt að gera þetta en við tókum annað skref út því að þá erum við að fylgja okkar áttavita.“ Það sé mikilvægast að tónlistarmenn fylgi sínu eigin innsæi. Heppnin spili sinn þátt Finnst þér heppni skipta máli þegar kemur að því að brjótast í gegn sem tónlistarmaður? Nanna: „Mér finnst það vera hluti af því. Það er enginn bara heppinn en auðvitað er ákveðin svona heppni í því að kannski gerir þú eitthvað lag og það er stemning fyrir því á þeim tíma. Eða þú spilaðir á einhverjum tónleikum og það var einhver þarna í salnum sem síðan pikkaði þig upp og fór að spila þig í útvarpinu eða það var bókari í herberginu eða eitthvað svona. En einn hluti sem er sameiginlegur með þessu öllu er að þú fórst og gerðir eitthvað. Þú varst að spila á tónleikum, þú gerðir lagið, þú varst duglegur og að sinna tónlistinni. Það helst alltaf í hendur við það að vera heppinn að gera eitthvað og líka bara að berskjalda sig og setja sig í alls konar aðstæður. Þannig verður þú heppinn.“ Japanskir aðdáendur tóku vel á móti sveitinni í Tókýó.Martin Ætla að leggjast í dvala Er ný tónlist á teikniborðinu og eruð þið farin að pæla í næstu plötu? Nanna: „Staðan er núna að við erum að klára þetta tónleikaferðalag í desember. Við förum til Suður-Ameríku og endum þar. Við erum ekki búin að sjá lengra en það að spila á þeim tónleikum og fara að leggja okkur, fara í smá dvala. Svo verðum við bara að sjá til.“ Hljómsveitin spilaði í Pompeii við Napólí á Ítalíu.Martin Eftir þetta svar kemur það ekki á óvart að Nanna eigi erfitt með að svara því hvar Of Monsters and Men verði eftir önnur fimmtán ár. „Ein plata í einu eða einn dagur í einu. Og fara þangað sem forvitnin kallar á mann. Leyfa sér það.“ Ekkert sé öruggt í fallvöltum heimi en þau séu allavega enn að skemmta sér í dag.
Of Monsters and Men Tónlist Tengdar fréttir Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Tónlistarheimurinn hefur tekið stakkaskiptum frá því að hljómsveitin Of Monsters and Men kom fyrst fram opinberlega í Músíktilraunum árið 2010. Á sama tíma og aukin krafa er gerð um að tónlistarmenn séu stöðugt sýnilegir hefur íslenska sveitin synt á móti straumnum og leyft sér að hverfa á milli útgáfudaga. 4. október 2026 09:30 Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Þann 20. september voru slétt fimmtán ár liðin frá því að platan My Head is an Animal, frumraun hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, kom út á Íslandi. Hún var svo fljótlega gefin út af útgáfurisanum Universal Music Group og skaut sex ungmennum frá Íslandi skyndilega á alþjóðasviðið. 27. september 2026 09:16 Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ofurhljómsveitin Of Monsters And Men halda stórtónleika í Kaplakrika þann 17. október næst komandi. Hljómsveitin hefur ekki spilað á Íslandi í nokkur ár en tilefnið er að ljúka heims tónleikaferðalagi á sínum heimaslóðum. 29. apríl 2026 11:41 Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Sjá meira
Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Tónlistarheimurinn hefur tekið stakkaskiptum frá því að hljómsveitin Of Monsters and Men kom fyrst fram opinberlega í Músíktilraunum árið 2010. Á sama tíma og aukin krafa er gerð um að tónlistarmenn séu stöðugt sýnilegir hefur íslenska sveitin synt á móti straumnum og leyft sér að hverfa á milli útgáfudaga. 4. október 2026 09:30
Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Þann 20. september voru slétt fimmtán ár liðin frá því að platan My Head is an Animal, frumraun hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, kom út á Íslandi. Hún var svo fljótlega gefin út af útgáfurisanum Universal Music Group og skaut sex ungmennum frá Íslandi skyndilega á alþjóðasviðið. 27. september 2026 09:16
Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ofurhljómsveitin Of Monsters And Men halda stórtónleika í Kaplakrika þann 17. október næst komandi. Hljómsveitin hefur ekki spilað á Íslandi í nokkur ár en tilefnið er að ljúka heims tónleikaferðalagi á sínum heimaslóðum. 29. apríl 2026 11:41