„Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 08:55 Vorið Vaknar (e. Spring Awakening) er rokksöngleikur eftir Steven Sater. Ólína Kr. Margeirsdóttir Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í kvöld rokksöngleikinn Vorið vaknar. Ungt fólk í uppreisn er þar í aðalhlutverki og fléttar verkið saman siðferði, kynlíf og rokk. Einn forsvarsmanna sýningarinnar segir það lýðheilsumál að rækta bæjar- og áhugaleikhús landsins.
Vorið vaknar er samið af Steven Sater og byggir á samnefndu þýsku leikriti Frank Wedekind frá 1891. Tónlistin var samin af Duncan Sheik, sem lést fyrir tæpum mánuði. Verkið hefur verið sett upp af hinum ýmsu leikhópum hér á landi síðustu ár, til að mynda af Leikfélagi Akureyrar og Herranótt í Menntaskólanum í Reykjavík og nú spreyta Mosfellingar sig á þessu fræga verki. „Ferlið hefur gengið rosalega vel en við erum ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og ætlum okkur mikið á aðeins sex vikum. Við höfum lagt mikið upp úr því að hrista hópinn vel saman, höldum hittinga utan æfinga og þetta er orðið smá eins og einn stór vinahópur enda erum við að eyða nær öllum frítíma okkar saman. Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum hvert frá öðru eftir frumsýningu,“ segir Brynja Sigurðardóttir, búninga- og leikmyndahönnuður sýningarinnar, í samtali við fréttastofu. Hér fyrir neðan má sjá tónlistarmyndband við lagið Djöfulsins fokk sem sungið er í sýningunni. Hljómsveit á hverri sýningu Yfir fjörutíu manns koma að sýningunni, þar á meðal sjö manna hljómsveit sem spilar undir með hverju einasta söngatriði. „Það er allt önnur tilfinning að vera með lifandi flutning á tónlist og þá sérstaklega lifandi strengjasveit. Það dýpkar verkið og tónlistin verður svo miklu meira töfrandi. Svo er líka ofboðslega skemmtilegt að fá fleira fólk í leikhúsið. Tónlistin í verkinu er þannig að það mæðir mikið á söng og þá sérstaklega samsöng og við erum með flóknar kórútsetningar og lifandi flutningur tónlistar lyftir mjög mikið undir sönginn,“ segir Brynja. Söngleikurinn var frumsýndur árið 2006 á Broadway og hlaut 8 Tony verðlaun, meðal annars fyrir besta söngleik ársins.Ólína Kr. Margeirsdóttir Tilvalið fyrir rokkunnendur Sýningin sé fyrir alla sem hafa gaman af söngleikjum, sérstaklega ungt fólk. „Það er mikið um tónlist, söng og dans og því tilvalið fyrir tónlistar- og rokkunnendur að skella sér í leikhús,“ segir Brynja. Söngleikurinn er frumsýndur í kvöld.Ólína Kr. Margeirsdóttir Leikfélag Mosfellsbæjar var stofnað 1976 í Hlégarði en er nú með aðsetur í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Brynja segir Mosfellinga mjög duglega að mæta í leikhús. „Áhugaleikhúsin eru svo áhugaverður vettvangur þar sem hópur af oft mjög ólíku fólki kemur saman til að skapa eitthvað magnað fyrir hvert annað og áhorfendur. Við höfum alltaf lagt áherslu á að leikhúsið sé samfélagsverkefni og staður þar sem öll fá að tilheyra og vera í skapandi samstarfi,“ segir Brynja. Dóra Wild og Valgeir Skagfjörð hafa tekið þátt í starfi leikfélagsins til margra ára.Ólína Kr. Margeirsdóttir Ástríða og metnaður Þegar fólk geri hlutina af ástríðu og til að stíga út fyrir þægindarammann verði til svakalegur metnaður. „Það er bókstaflega lýðheilsumál að rækta svona starfsemi svo hún vaxi. Það er líka skemmtilegt að minnast á það að margir af þeim leikurum og listrænum stjórnendum sem við þekkjum úr stóru leikhúsunum í dag hófu feril sinn í áhugaleikfélögum. Annar leikstjóranna fyrir Vorið vaknar, Elísabet Skagfjörð, byrjaði til að mynda á barnanámskeiðum hjá okkur í leikfélaginu og er nú komið með meistaragráðu í leiklist og fékk tilnefningu til Grímunnar fyrr á árinu,“ segir Brynja. Elísabet Tinna Haraldsdóttir og Kristján Nói Kristjánsson.Ólína Kr. Margeirsdóttir „Verkið fléttar saman siðferði, kynlíf og rokk í sögu sem snertir hjartarætur,“ segir Brynja.Ólína Kr. Margeirsdóttir
Mosfellsbær Leikhús Tónlist Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Sjá meira