Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Starri Freyr Jónsson skrifar 12. október 2026 10:28 „Við höfum tekið eftir auknum krafti síðasta áratuginn eða svo. Ef við lítum aftur til aldamótanna voru hvítfiskveiðar langstærsti atvinnuvegurinn en síðan hafa bæst við laxeldi, ferðaþjónusta, þar með talin þjónusta við skemmtiferðaskip, og Kerecis,“ segir Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Framúrskarandi fyrirtækjum fjölgar á Vestfjörðum milli ára. Mynd/Ágúst Atlason. Það virðist vera góður kraftur í atvinnulífinu á Vestfjörðum um þessar mundir. Á síðasta ári voru tíu vestfirsk fyrirtæki á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki en samkvæmt stöðunni nú eru þau þegar orðin 14. Þar af eru átta fyrirtæki ný á listanum í ár.
Endanlegur listi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 liggur ekki fyrir en tölurnar gefa engu að síður ákveðna vísbendingu um stöðuna á Vestfjörðum. Athygli vekur að átta af þessum 14 fyrirtækjum eru staðsett í Ísafjarðarbæ. Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir erfitt að lesa of mikið í breytingar milli einstakra ára en þegar horft sé yfir lengra tímabil sé þróunin skýrari. „Við höfum tekið eftir auknum krafti síðasta áratuginn eða svo. Ef við lítum aftur til aldamótanna voru hvítfiskveiðar langstærsti atvinnuvegurinn en síðan hafa bæst við laxeldi, ferðaþjónusta, þar með talin þjónusta við skemmtiferðaskip, og Kerecis,“ segir Gylfi. Hann nefnir einnig kalkþörungavinnsluna á Bíldudal, sem hóf starfsemi fyrir um tveimur áratugum, og uppbyggingu systurverksmiðju hennar í Súðavík. Þá sé fjöldi annarra fyrirtækja starfandi í fjölbreyttum greinum og þjónustu við bæði opinbera aðila og einkaaðila. Vestfjarðarstofa. Samkeppnishæfnin skiptir öllu Atvinnulíf á Vestfjörðum er að stórum hluta útflutningsdrifið og segir Gylfi því samkeppnishæfni skipta höfuðmáli. „Nær öll framleiðslufyrirtæki á Vestfjörðum eru í útflutningi og því er samkeppnishæfni atvinnulífsins alfa og ómega.“ Við höfum tekið eftir auknum krafti síðasta áratuginn eða svo. Þar skipti meðal annars máli greið viðskipti, stöðugleiki gjaldmiðilsins og öflugar flutningskeðjur, bæði innanlands og til útlanda. Miklir fjármunir hafi farið í að bæta og tryggja vegasamgöngur milli Vestfjarða og höfuðborgarsvæðisins og segir Gylfi næsta stóra skref vera að klára brú yfir Djúpafjörð. Vestfjarðarstofa. Sveitarfélögin geti sömuleiðis lagt sitt af mörkum með góðu vatnsöryggi, hóflegri skattlagningu, skipulagi lóða og skilvirkum ferlum þegar kemur að uppbyggingu. „Og svo getur bærinn gert ýmislegt til að tryggja að fólk vilji búa á svæðinu með góðum skólum, frístundastarfi og menningu.“ Tækifæri í hvölum og heilsársferðaþjónustu Þótt staðsetning Vestfjarða geti skapað áskoranir telur Gylfi hana einnig fela í sér mikilvægt samkeppnisforskot. „Vestfirðir eru auðlindadrifið útflutningshagkerfi með mikla náttúrufegurð. Þar er okkar samkeppnisforskot og á þeim nótum viljum við halda áfram að þróa samfélagið og atvinnulífið.“ Hann sér meðal annars áframhaldandi vaxtartækifæri í laxeldi, starfsemi Kerecis og ferðaþjónustu. Fjölmörg ferðaþjónustuverkefni séu í undirbúningi og bættar samgöngur geti skapað enn frekari möguleika. „Sérstaklega langar mig þó að nefna það frábæra aðgengi að hvölum í Ísafjarðardjúpi. Þar eru mikil tækifæri til heilsársferðaþjónustu.“ Vestfjarðarstofa. Áskoranirnar eru þó áfram til staðar. Vestfirðir eru fámennt samfélag á stóru og harðbýlu svæði og uppbygging innviða tekur mið af því. Gylfi nefnir sérstaklega húsnæðismál sem eitt af stóru verkefnum næstu missera. Vestfirðir eru auðlindadrifið útflutningshagkerfi með mikla náttúrufegurð. Þar er okkar samkeppnisforskot. En hvað myndi bæjarstjórinn segja við atvinnurekanda eða frumkvöðul á höfuðborgarsvæðinu sem væri að velta fyrir sér að stofna fyrirtæki eða flytja starfsemi vestur? Svarið er stutt og laggott: „Velkomin! Hvernig get ég hjálpað?“ Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Sjá meira