Lífið

Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið líf og fjör hjá stjörnum landsins í liðinni viku.
Það var mikið líf og fjör hjá stjörnum landsins í liðinni viku. Instagram

Hausthret og gular viðvaranir eru mættar með læti á klakann en það stoppar að sjálfsögðu ekki stuðið. Huggulegheit, haustlitir, ferðalög, falleg tímamót og fleira fjör einkenndi samfélagsmiðlana í liðinnni viku og stjörnur landsins halda áfram að njóta lífsins

Mjög ánægð með flugið

Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú, athafnakona og samfélagsmiðlastjarna flaug með Icelandair á dögunum og fékk að kíkja í stjórnklefann. Hún var gríðarlega ánægð með flugið og sagði að þarna væru heimsins nettustu flugmenn og heitustu flugfreyjur og flugþjónarnir. 

Dorrit var sátt með flugið.Instagram

Njóta í New York

Vaka Njálsdóttir, vörumerkjastjóri Collab, og rapparinn Birnir njóta lífsins saman í fríi í New York. 

Sólin skín á parið í New York.Instagram

Eþíópíu-ævintýri Evu Ruzu

Skemmtikrafturinn Eva Ruza átti ævintýraríka og gefandi ferð með SOS barnaþorpunum í Eþíópíu á dögunum.

Gift í fimm ár

Athafnakonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, giftist ástinni sinni Kára Hallgrímssyni, fjárfesti og sjóðsstjóra, fyrir fimm árum á föstudag. „Lukka lífs míns að vera gift þessum í 5 ár,“ skrifaði Rikka undir fallega brúðkaupsmynd af þeim á Instagram.

Glæsileg Parísarpæja

Leikkonan og sunddrottningin Ragga Ragnars naut lífsins í París um helgina.

Nýtur lífsins óháð verðbólgunni

Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime segir svakalegt að heyra með verðbólguna og olíuverðið en hann sé þó búinn að hafa rosalega gaman síðustu daga.

Sjálfu-stuð

Tónlistarkonan Kolfreyja Sól bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, birti sjálfsmyndasyrpu á grammið. Hún var að gefa út plötuna 1867 og er á fullu að koma fram í tónlistarheiminum. 

Afmæli tískudrottningar

Þóra Valdimarsdóttir, listrænn stjórnandi tískuhússins Rotate, fagnaði afmæli sínu í Kaupmannahöfn berleggja í pels.

Á tónlistarhátíð í New York

Það er alltaf stuð hjá Birni Boða Björnssyni sem er búsettur í New York. Hann er nýkominn heim frá Ibiza og skellti sér á tónlistarhátíð með vinum í New York. 

Heit handboltadrottning

Handboltadrottningin Hafdís Renötudóttir var algjör skvísa þegar hún skellti sér út á lífið um helgina.

Skvís í Sviss

Áhrifavaldurinn og pílateskennarinn Alexandra Björgvinsdóttir er búsett í Sviss og nýtur lífsins þar til hins ítrasta. Um helgina skellti hún sér í tíu rétta kvöldverð og með því.

Alexandra ræddi við blaðamann um lífið í Sviss fyrr á árinu.

Bríet í Bandaríkjunum

Poppstjarnan Bríet er á tónleikaferðalagi um Bandaríkin þar sem hún hitar upp upp fyrir Daða Frey. 

Leður fyrir Pussycat Dolls

Ofurskvísan Anna Björk Björgvinsdóttir hefur farið á fleiri tónleika en flestir og ferðast víðs vegar um heiminn til að berja stórstjörnur úr tónlistarheiminum augum. Hún skellti sér til Liverpool í Englandi til að sjá skvísusveitina Pussycat Dolls á sviði en þær voru einstaklega vinsælar rétt eftir aldamótin og eru með endurkomu um þessar mundir. 

Með X-peng í Sviss

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstýran Sunneva Einarsdóttir fór í skvísuferð til Sviss ásamt vinkonu sinni Hildi Sif Hauksdóttur á vegum X-Peng rafbíla.

Græneygð í gír

Eurovision-farinn Diljá Pétursdóttir var extra græneygð um helgina.

Asíureisa Gyðu

Gyða Dröfn, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni, fer í ævintýraferð á hverju hausti. Fyrsta stopp í ár var Víetnam.

September-skvís

Dansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir fer yfir góðar stundir í september.

Ástrós var viðmælandi í Vísisþættinum Einkalífinu árið 2024. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.