Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Harpa 21. ágúst 2026 13:25 Glæsileg dagskrá bíður gesta í Hörpu á Menningarnótt Harpa fagnar 15 ára afmæli sínu á Menningarnótt og húsið verður fullt af tónlist, leik, sköpun og óvæntum uppákomum frá kl. 12 til 18.30. Fjöldi viðburða verður í boði fyrir gesti á öllum aldri og frír aðgangur er að allri dagskrá dagsins.
Fjölskyldur geta byrjað daginn á að ferðast um sólkerfið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stjörnu-Sævari í Eldborg, þar sem sól, tungl, norðurljós og jafnvel sólmyrkvar verða skoðuð með tónlist og sýnitilraunum. Í Norðurljósum taka Sólmyrkvleikar ÞYKJÓ síðan við með lögum, ljóðum, stuttmyndum og skuggaleikhúsi sem börn af Vestfjörðum hafa skapað út frá hugmyndum sínum um sólmyrkvann. Á Hörputorgi verður nóg um að vera. Þar mætast Lúðrasveit verkalýðsins, Lúðrasveitin Svanurinn, Brassband Reykjavíkur og Lúðrasveit Reykjavíkur í árlegum lúðrasveitabardaga þar sem sprell, húllumhæ og tónlist ráða ríkjum. Gamla húsbílnum Brumm Brumm verður lagt á torginu og gestir geta kynnst silkiprenti í lifandi farandprentsmiðju. Sérstaklega verður boðið upp á Prent á krakka, þar sem myndir eru silkiprentaðar beint á húð líkt og tattoo-límmiðar. Hulda Margrét Sköpunin heldur áfram inni í Hörpu. Hönnunarteymið ÞYKJÓ býður gestum á öllum aldri að búa til litríkar afmæliskórónur í tilefni 15 ára afmælisins og í bátasmiðju Memmm fá gestir að spreyta sig á eigin bátasmíði. Gleðisveitin Hnokkar ásamt Sveiflustöðinni sér svo til þess að jazz, dans og karnivalstemning berist um opin rými hússins. Gestir sem vilja kynnast íslenskri tónlistarsögu fá einnig sérstakt tækifæri til þess. Frír aðgangur verður að Heimi íslenskrar tónlistar milli kl. 13:00 og 17:00, þar sem tónlist, frásögn og myndræn miðlun leiða gesti frá landnámi til dagsins í dag. Pláss er takmarkað og aldurstakmark er 10 ára. Steinunn Matthíasdóttir Menningarnótt getur verið bæði stór og hávær dagur og í Hörpu verður líka rými fyrir þá sem þurfa smá hlé frá ysnum. Í Stemmu býður ÞYKJÓ upp á Hreiðrum okkur, rólegt skynrými þar sem börn og fjölskyldur geta hallað sér aftur, lesið, lokað augunum og hlustað á hljóðheim fugla og náttúru. Rýmið hentar vel þeim sem vilja draga sig aðeins út úr mannfjöldanum og finna ró í miðri hátíðinni. Steinunn Matthíasdóttir Dagskráin heldur áfram fram eftir degi með blúsi í Flóa, dansi með Íslenska dansflokknum og Dansverkstæðinu og fjölbreyttum uppákomum víðs vegar um húsið. Lokahljómurinn verður sleginn þegar Ragnheiður Gröndal og Karlakórinn Fóstbræður leiða gesti í samsöng í alrými Hörpu með ástsælum íslenskum dægurlögum. Steinunn Matthíasdóttir Harpa býður heim á Menningarnótt, hvort sem stefnan er tekin á sólmyrkva, lúðrasveitir, bátasmíði, skapandi smiðjur, dans, íslenska tónlistarsögu eða einfaldlega góða stund saman. Hulda Margrét Hulda Margrét Hulda Margrét Hulda Margrét Hulda Margrét Hans Vera Hans Vera
Menning Menningarnótt Harpa Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira