Körfubolti

„Takk fyrir mig körfu­bolti“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lovísa í leik með Haukum.
Lovísa í leik með Haukum. vísir/bára dröfn

Körfuboltakonan Lovísa Björt Henningsdóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hún greinir frá þessu í stöðufærslu á Instagram.

„Trilljón tímabilum, þó nokkrum titlum, endalaust af minningum og 8 aðgerðum seinna er kominn tími á eitthvað nýtt, takk fyrir mig körfubolti,“ segir Lovísa sem meiddist til að mynda illa á hné á þarsíðasta tímabili þegar hún var leikmaður Hauka. 

Hún fylgdi liðinu aftur á móti allt tímabilið og uppskar Íslandsmeistaratitil sem fyrirliði liðsins.

Á sínum ferli varð Lovísa einu sinni Íslandsmeistari, fimm sinnum bikarmeistari og tvisvar deildarmeistari. Hún komst alls sex sinnum í lokaúrslit en tapaði fimm sinnum. Hún lék allan sinn feril hér á landi með Haukum. Lovísa er í dag þrítug en verður 31 árs seinna á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×