Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. ágúst 2026 11:43 Frá puttefest í Folkeparken árið 2023. Næturhrafnarnir í Hróarskeldu Sextán ára piltur lést eftir að hafa verið stunginn ítrekað með hníf í busavígslu í Hróarskeldu í gærkvöldi. Jafnaldri hans hefur verið handtekinn og verður ákærður fyrir manndráp.
Að sögn lögreglunnar á Mið- og Vestur-Sjálandi var um innbyrðis uppgjör að ræða. Drengurinn var stunginn við Louisevej skammt frá Folkeparken í Hróarskeldu. Lögreglu barst tilkynning um árásina klukkan hálf sex í gærkvöldi og var pilturinn í kjölfarið fluttur með þyrlu á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn en ekki tókst að bjarga lífi hans. Að sögn Michaels Sehested aðstoðaryfirlögregluþjóns bendir allt til þess að um innbyrðis deilu milli árásarmannsins og fórnarlambsins hafi verið að ræða og að málið tengist ekki skipulagðri glæpastarfsemi með neinum hætti. Hann ræddi við danska ríkisútvarpið. Árleg busavígsla Fjöldi ungmenna var kominn saman í Folkeparken í Hróarskeldu á svokallaðri puttefest sem er eins konar árleg busavígsla þar sem nýnemar koma saman við upphaf skólaársins. Lögregla segir handtekna piltinn hafa fundist tiltölulega fljótt eftir árásina, meðal annars með aðstoð ummerkja sem fundust á vettvangi. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. september og vistaður á lokaðri stofnun fyrir ungmenni. Hinn ákærði neitar sök. Í dómsal á laugardag kom jafnframt fram hjá dómaranum að ekki sé hægt að útiloka að um átök milli hópa hafi verið að ræða, þótt lögregla hafi áður sagst ekki hafa fundið neitt sem bendi til tengsla við skipulagða brotastarfsemi. Skólinn opinn fyrir áfallahjálp Skólayfirvöld í Himmelev-skóla í Roskilde hafa staðfest að hinn látni hafi verið nemandi við skólann. „Það er með mikilli sorg sem við getum staðfest að einn af nemendum okkar við Himmelev-menntaskóla lést eftir mjög sorglegan atburð við Folkeparken í gær,“ segir í tilkynningu frá skólanum, sem bætir við að hugur þeirra sé hjá fjölskyldu og vinum hins látna. Skólinn ákvað að hafa opið fyrir nemendur og starfsfólk daginn eftir atburðinn til að bjóða upp á áfallahjálp, og verður sú aðstoð einnig í boði í næstu viku. Fylltist af löggu- og sjúkrabílum Klaus Walmod, formaður Næturhrafnanna (Natteravnene) í Hróarskeldu, sem voru viðstaddir hátíðina líkt og venjulega, segir garðinn fljótt hafa fyllst af blikkandi ljósum lögreglu- og sjúkrabíla umrætt kvöld. Nicolai Wammen dómsmálaráðherra hefur brugðist við málinu og segir atburðinn „hræðilegan og djúpt sorglegan“. „Hugur minn og dýpsta samúð er hjá drengnum og fjölskyldu hans og vinum,“ sagði ráðherrann. Lögregla biðlar til ungmenna sem voru viðstödd og kunna að hafa séð eða heyrt eitthvað að láta vita af sér, og hvetur jafnframt unga fólkið sem varð vitni að atburðinum til að ræða upplifun sína, hvort sem er við foreldra, aðra fullorðna eða fagfólk.
Danmörk Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira