Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 09:00 Lögreglan í Danmörku fer með rannsókn málsins. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Þrír danskir unglingsstrákar eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa skipulagt árás í því skyni að meiða eða myrða ungmenni í grunnskólanum Hadsten í Danmörku.
Einn drengjanna er fimmtán ára gamall og hinir tveir sextán ára. Þeir voru handteknir á mánudagsmorgun og leiddir fyrir dómara síðdegis þar sem þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 31. ágúst. Vegna aldurs þeirra verða þeir vistaðir á stofnun fyrir ungt fólk. Málið varðar 114. grein danskra hegningarlaga sem er einnig kölluð hryðjuverkagreinin, það er að segja að þeir ætluðu sér að meiða eða myrða nemendur skólans. TV2 hefur eftir Anders Uhrskov rannsóknarlögreglumanni að drengirnir séu taldir hafa ætlað að koma með bæði sprengjur og vopn. Allir þrír lýstu yfir sakleysi sínu. Allir eru þeir með danskan ríkisborgararétt en enginn þeirra býr í sveitarfélaginu Favrskov á Austur-Jótlandi þar sem Hadsten-grunnskólinn er staðsettur. Þeir áttu í samskiptum á miðlunum Discord og Telegram þar sem þeir skipulögðu árásina. Tveir þeirra voru handteknir í Austur-Jótlandi en sá þriðji í Kaupmannahöfn. Sérstakur fundur fyrir starfsfólk Hadsten var haldinn í morgun þar sem skólasálfræðingur var einnig mættur. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrst stóð að skólinn væri lýðháskóli en í raun er um að ræða grunnskóla.
Danmörk Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira