„Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Agnar Már Másson skrifar 2. ágúst 2026 13:57 Fólk á öllum aldri sækir Neistaflug heim um helgina. Solla Stirða og Lína Langsokkur hafa skemmt ungu kynslóðinni. Aðsend Kærleikur og stemning eru í loftinu í Neskaupsstað um þessar mundir enda stendur hátíðin Neistaflug yfir nú um verslunarmannahelgina. Ræst hefur úr spám og nú er sól og blíða í bænum.
Greint var frá því á Vísi í gær að norðanmenn væru ósáttir við spár veðurfræðinga, sem höfðu spáð súld fyrir bæði Norðan og Austan. Ræst hefur að milu leyti úr þeim spám, jafnvel á Austurlandi þar sem mikilli rigningu var spáð en nú er sól. Hátíðin Neistaflug stendur yfir í Neskaupstað um verslunarmannahelgina en María Bóel Guðmundsdóttir, skipuleggjandi Neistaflugs, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að verðið fyrir austan væri orðið talsvert betra en spár höfðu gert ráð fyrir. „Núna er bara komin sól og blíða. Þannig að við getum ekki kvartað undan veðrinu og svo er mikill kærleikur og góð stemning í bænum.“ Sápuboltameistarar.Aðsend Keppt var í sápubolta á hátíðinni.Aðsend Margt hefur verið um að vera á hátíðinni um helgina. Lína Langsokkur og Solla Stirða hafa skemmt yngri kynslóðum. Húsið hafi skemmfyllst í partíbingói og síðan hafi Diljá, Færibandið og Aron Can einnig troðið upp í Egilsbúð á föstudag. Fólk á öllum aldri sækir Neistaflug heim um helgina. Solla Stirða og Lína Langsokkur hafa skemmt ungu kynslóðinni.Aðsend Hún kveðst ekki hafa tölu á því hve margir eru í bænum en bæði sé um að ræða heimamenn – þar á meðal brottflutta heimamenn – en einnig fólk alls staðar að. Flestir hafi þó einhverja tengingu. Rætt var við Maríu í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það er fullt af fólki í bænum.“ Í kvöld verða stórtónleikar á hátíðarsvæðinu þar sem Sprite Zero Klan, Jóhanna Guðrún, Emmsjé Gauti og Nýdönsk stíga öll á svið. Síðan verður flugeldasýning. Færibandið tróð upp á tónleikum í gær.Aðsend Svo halda Sprite Zero Klan áfram í Beituskúrnum en á þeim tónleikum verður átján ára aldurstakmark. „Við hlökkum mikið til.“ Aron Can tryllti lýðinn.Aðsend Það var uppselt í partíbingó á Neistaflugi í gær.Aðsend Hvaða tölu ætli þeir séu að lesa upp?Aðsend Frá tónleiku á Neistaflugi.Aðsend
Fjarðabyggð Verslunarmannahelgin Mest lesið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira