Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Andri Broddason skrifar 1. ágúst 2026 22:45 Hinn samningslausi Orjan Nyland er orðinn mjög eftirsóttur eftir gengi hans á Heimsmeistaramótinu. Buda Mendes/Getty Images Ørjan Håskjold Nyland, markmaður norska landsliðsins í fótbolta, er enn að jafna sig á vinsældum eftir heimsmeistaramótið í fótbolta. Hann hefur reynt að sleppa við að fara í búðina vegna athyglinnar sem hann fær.
Norska landsliðið átti eftirminnilegt heimsmeistaramót þar sem liðið komst í 8-liða úrslit. Ørjan Håskjold Nyland stóð í marki Noregs og varð að einni af hetjum liðsins. Vinsældir hans jukust gríðarlega og hefur daglegt líf hans heima í Noregi tekið miklum breytingum. Í viðtali við NRK sagði Nyland að honum þætti athyglin ekki neikvæð. „Það er gott að fólki sé ekki sama og kunni að meta það sem maður hefur gert. Það sýnir að maður hefur gert eitthvað mjög stórt og gert það vel.“ Eftir að Nyland kom heim til Noregs af heimsmeistaramótinu var hann beðinn um myndir og eiginhandaráritanir hvert sem hann fór. Það endaði með því að hann fór ekki mikið út fyrir hússins dyr. Sem dæmi fer hann aðeins í búðina af brýnustu nauðsyn, annars lætur hann konuna sína fara. Á síðasta tímabili spilaði Nyland fyrir Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni en hann er á förum frá félaginu. Ekki er komið á hreint í hvaða lið hann mun fara en hann er í viðræðum við önnur félög. Eftir að hafa farið frá Noregi í atvinnumennsku árið 2018 hefur hann spilað í þremur löndum: Englandi, Þýskalandi og Spáni. Á meðan hann er í samningaviðræðum býr hann í heimabæ sínum Volda í Noregi. Gengi markmannsins á heimsmeistaramótinu hefur greinilega heillað félög frá ýmsum löndum en Nyland segir að það mikilvægasta sé að fjölskyldunni líði vel.
HM 2026 í fótbolta Noregur Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira