Infantino hættir við allt saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2026 23:45 Gianni Infantino segist nú vera hættur við allt saman. Getty/Dominik Bindl Gianni Infantino, forseti FIFA, tilkynnti í kvöld að hann væri hættur við umdeilda áætlun sína um að selja hlut í stórmótum sambandsins í kjölfar mikillar andstöðu meðal aðildarsambanda.
Infantino sagði við breska ríkisútvarpið að ljóst væri orðið að verkefnið hefði „skapað ágreining“ sem væri „ekki lengur í þágu“ upprunalegs markmiðs þess. Svisslendingurinn bætti við: „Þar af leiðandi verður þessi tillaga ekki að veruleika.“ Infantino hafði boðið öllum 211 aðildarsamböndunum 40 milljónir dala (tæpa fimm milljarða króna) ef þau styddu tillögu um einkafjárfestingu í mótum þess, þar á meðal heimsmeistaramótum karla og kvenna. 55 aðildarsambönd evrópskrar knattspyrnu, UEFA, þar á meðal Knattspyrnusamband Íslands, kusu á fimmtudag að sniðganga heimsmeistaramótið ef áformin næðu fram að ganga. Framkvæmdastjóri FIFA, Kevin Lamour, sagði að stjórn sambandsins hefði verið „blekkt“ varðandi verkefnið. Carlos Cordeiro – aðalráðgjafi Infantino í alþjóðlegri stefnumótun og stjórnarháttum – sagði af sér vegna málsins og sagði tillöguna „slæman samning fyrir knattspyrnuna“ sem myndi „veðsetja framtíð knattspyrnunnar“. Þetta gerðist eftir að tvö önnur stór álfusambönd höfðu lýst sig andvíg áformunum. CONCACAF, sem stjórnar knattspyrnu í Norður- og Mið-Ameríku og Karíbahafi – og hélt heimsmeistaramótið í sumar – sagði aðildarsambönd sín „hafna“ tillögunni og heimildir herma að langflest sambönd á svæðinu séu að missa, eða hafi misst, trú á Infantino. Knattspyrnusamband Asíu sagðist líka standa með UEFA og CONCACAF. Hinn 56 ára gamli Infantino er nú undir gríðarlegum þrýstingi þar sem hann sækist eftir endurkjöri til fjórða kjörtímabils sem forseti á þingi FIFA í mars. Hann sagðist nú ætla að „leiða alla hagsmunaaðila saman á ný“ í „anda sameiginlegra hagsmuna“ í knattspyrnunni.
FIFA Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Enski boltinn Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Golf Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Real Madrid klófestir besta unga leikmann spænsku deildarinnar Þór sækir fyrirliða frá Spáni Leikbanni Mudryk aflétt Slot á leið til Sádi-Arabíu? Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ Sjáðu Tryggva stíga trylltan dans, vítakeppni Stjörnunnar og mark Vestra Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Frá Keflavík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“ „Mig dreymdi alla daga um að spila með Messi“ Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Franco Baresi er látinn FIFA heldur settri stefnu Lítið af möguleikum fyrir Liverpool í vörninni Stones skrifar undir hjá ítölsku meisturunum Leikmenn sem gerast sekir um mismunun fá tíu leikja bann Er ekki bjartsýnn fyrir framtíð Newcastle Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir dramatíska framlengingu og vítaspyrnukeppni Sjá meira