„Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 14:47 Freyr Alexandersson hefur farið frábærlega af stað í nýju starfi hjá Rosenborg. epa/Paul S. Amundsen Freyr Alexandersson vill sjá betri mætingu á heimaleiki Rosenborg. Liðið hefur unnið alla þrjá keppnisleiki sína síðan hann tók við, án þess að fá á sig mark.
Rosenborg fékk Fredrikstad í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni í gær. Heimamenn sýndu gestunum enga miskunn og unnu 4-0 sigur. Freyr hefur nú stýrt Rosenborg í þremur deildarleikjum en liðið hefur unnið þá, 10-0 samanlagt. Freyr vonast til að sjá fleiri á næstu leikjum Rosenborg á heimavelli liðsins, Lerkendal, í Þrándheimi. „Akkúrat núna stend ég og hugsa: Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti? Þessi leikvangur hefur svo mikla möguleika,“ sagði Freyr eftir leikinn gegn Fredrikstad. Leikurinn var færður vegna æfingaleiks Rosenborg við Manchester United á Lerkendal á föstudaginn. Hluti stuðningsmanna Rosenborg var ósáttur við það og mótmælti á leiknum í gær með því að þegja fyrsta stundarfjórðunginn. „Þeir völdu þess í stað að sækjast eftir gróða og markaðsvæðingu. Með því að grafa undan sjálfsmynd félagsins verður slökkt á hljóðinu í Lerkendal,“ sögðu stuðningsmannahóparnir Ultras Nidaros og FN13 í sameiginlegri yfirlýsingu fyrir leikinn. Næsti leikur Rosenborg er gegn Brann í Björgvin á sunnudaginn. Freyr stýrði Brann í eitt og hálft ár en var látinn fara þaðan í byrjun júní. Skömmu síðar var hann ráðinn þjálfari Rosenborg. Eftir gott gengi að undanförnu er Rosenborg komið upp í 9. sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Brann er í 8. sætinu en einu stigi munar á liðunum. Brann tapaði fyrir Vålerenga, 2-3, í síðasta leik sínum. Þrír Íslendingar leika með Brann: Eggert Aron Guðmundsson, Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon.
Norski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Sjá meira