Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2026 20:14 Róbert Frosti Þorkelsson er lykilmaður hjá sænska liðinu GAIS. getty/Seb Daly Misjafnlega gekk hjá Íslendingaliðum á Norðurlöndunum í Evrópuleikjum þeirra í kvöld. Róbert Frosti Þorkelsson og félagar í GAIS mega vel við una eftir góðan sigur á Nordsjælland.
Róbert var í byrjunarliði GAIS og lék allan leikinn þegar liðið bar sigurorð af Nordsjælland á heimavelli, 1-0, í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Matteo de Brienne skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Daníel Ingi Jóhannesson sat á varamannabekknum hjá Nordsjælland. Róbert hefur verið í stóru hlutverki hjá GAIS á þessu tímabili. Hann hefur leikið nítján leiki í öllum keppnum og skorað þrjú mörk. Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson stóð á milli stanganna hjá Midtjylland sem laut í lægra haldi fyrir Besiktas, 1-0, á útivelli í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Danska liðið var manni færri frá 15. mínútu og getur því ágætlega við úrslitin unað. Elías átti sinn þátt í að halda Tyrkjunum í skefjum en hann varði sex skot í leiknum. Brann fór illa að ráði sínu og missti niður tveggja marka forskot gegn Universitatea Cluj frá Rúmeníu í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Lokatölur 2-2. Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Brann og lék fyrstu áttatíu mínúturnar. Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson komu báðir inn á sem varamenn á 66. mínútu. Þetta var fyrsti leikur Eggerts síðan 27. nóvember en þá meiddist hann á hné í Evrópuleik gegn PAOK. Rúnar Alex Rúnarsson varði mark FC Kaupmannahafnar í 3-3 jafntefli við Polissya Zhytomyr í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Viktor Bjarki Daðason var fjarri góðu gamni hjá FCK vegna meiðsla.
Sambandsdeild Evrópu Evrópudeild UEFA Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira