Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. júlí 2026 14:02 Aldagamalt kort af Tartaríu, mynd af leðjuflóði og skákmeistarinn Kasparov sem trúði á kenninguna um Tartaríu. Var eitt sinn til víðfeðmt heimsveldi sem náði yfir hálfan hnöttinn, reisti margar af stórkostlegustu byggingum mannkyns eins og pýramídana, Taj Mahal og þinghús Bandaríkjanna, en var svo þurrkað út í leðjuflóði og að lokum strikað út úr sögubókunum?
Prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann fjalla í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldsins um samsæriskenninguna um Stóru Tartaríu, sem hefur náð ótrúlegum vinsældum á netinu á síðustu árum, Til marks um umfang samsæriskenningarinnar telur Facebook-hópur um þetta horfna heimsveldi nú um 580 þúsund meðlimi. Kenningin á sér djúpar rætur í Rússlandi en í anda flestra samsæriskenninga hefur frásögnin breyst, vaxið og jafnvel kollvarpast á ferðalagi sínu um netheima. Upphaf kenninga um Stóru Tartaríu má að mestu leyti rekja til hugmynda Anatólí Fomenko, eins virtasta núlifandi stærðfræðings Rússlands. Hann heldur því fram að mannkynssagan sé í raun mun styttri en opinberar sögubækur gefa til kynna, heilu aldirnar hafi aldrei átt sér stað og mörg frægðarmenni sögunnar séu í raun einn og sami einstaklingurinn. Fomenko heldur því til að mynda fram að Jesús hafi verið býsanski keisarinn Komnenos sem var uppi á 12. öld. Þótt rússneska vísindaakademían hafni alfarið þessari sögulegu endurskoðun, á þessi stærðfræðingur og sagnfræðiloddari sér ýmsa dygga stuðningsmenn. Meðal þeirra var sjálfur skákheimsmeistarinn Garrí Kasparov sem dreifði kenningunum á tíunda áratugnum. Skákgoðsögnin Garry Kasparov trúði á kenningu Fomenko.Getty/Archivio Mondadori Hin forsenda samsæriskenningarinnar um Stóru Tartaríu liggur í gömlum ruglingi og þekkingarleysi Evrópumanna á landsvæðinu austur af Kákasusfjöllum. Á gömlum evrópskum landakortum var orðið Tartaría iðulega sett inn yfir víðáttur Mið-Asíu og Síberíu, einfaldlega vegna þess að Vesturlandabúar þekktu þessi lönd lítið sem ekkert. Nafnið sjálft er afbökun á heiti Tatara, raunverulegrar þjóðar af tyrkneskum uppruna, en Evrópumenn bættu bókstafnum r inn í orðið því það minnti þá á Tartarus, undirheima grískrar goðafræði. Þeim þótti nefnilega tengingin við sjálft helvíti viðeigandi eftir hrottalegar innrásir Mongóla á 13. öld. Tartaría var því aldrei heimsveldi, heldur orð sem kortagerðarmenn notuðu til að fylla upp í þekkingargat - ekki ósvipað því þegar skrifað var „hér eru drekar“ yfir ókönnuð svæði á sjókortum. Fomenko greip þetta dularfulla orð af gömlu kortunum og lagði þar með grunninn að hugmyndinni um risavaxið heimsveldi sem síðar var sagt hafa verið þaggað niður af hinu opinbera. Þegar hugmyndin barst svo inn á enskumælandi svæði netsins um miðjan síðasta áratug bættist nýtt eldsneyti á bálið: Gömlu kortin með hinu framandi nafni voru nú matreidd sem óyggjandi sönnunargögn um að heilu heimsveldi hefði verið eytt úr sameiginlegu minni mannkyns. Kort af Asíu frá 18. öld sem er skipt niður í tartísk svæði. Fylgjendur kenningarinnar telja sig nefnilega sjá sönnunargögn um þetta gleymda heimsveldi víða í hversdagsleikanum. Kjallaragluggar á eldri byggingum eru sagðir hafa upprunalega verið jarðhæðir sem grófust í leðjuflóðinu mikla. Gamlar ljósmyndir af mannlausum götum stórborga eru á sama hátt sagðar sýna borgir þar sem íbúarnir hurfu skyndilega. Hin fræðilega og raunverulega skýring er hins vegar mun einfaldari: Ljósmyndatækni þess tíma krafðist langrar lýsingar og náði því hreinlega ekki að festa fólk á hreyfingu á filmu. Í þættinum fá hlustendur jafnframt að heyra söguna á bak við helsta tromp Tartaríusinna; leyniskjal frá bandarísku leyniþjónustunni CIA frá árinu 1957 sem reynist, þegar betur er að gáð, fjalla um allt annað en týnt heimsveldi. Þáttur Skuggavaldsins um Stóru Tartaríu er nú aðgengilegur í öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Mest lesið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Tónlist Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fleiri fréttir Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Sjá meira