Hissa á útspili Haalands Sindri Sverrisson skrifar 11. júlí 2026 19:01 Thomas Tuchel segist elska pressu og það er svo sannarlega nóg af henni í boði þegar menn stýra enska landsliðinu. Getty/Francois Nel Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segist lítið botna í ummælum Erlings Haaland í aðdraganda þess að enska liðið tekst á við Haaland og félaga í 8-liða úrslitum HM í fótbolta í kvöld. „
Ég held að þið ættuð að setja alla pressuna á England,“ sagði Haaland við blaðamenn á fimmtudaginn. Vissulega eru Englendingar taldir sigurstranglegri, og Norðmenn þegar búnir að ná lengra en margir spáðu, en það kom Tuchel þó verulega á óvart að Haaland skyldi sjálfur tala eins og að norska liðið væri minni máttar í kvöld. „Það kemur mér á óvart að Erling hafi sagt þetta, því ég hef alltaf haldið að hann elski pressu og þrífist best undir pressu. Það kemur mér á óvart að hann velti henni yfir á okkur,“ sagði Tuchel við norska ríkismiðilinn NRK. „Við elskum pressuna. Þetta er bara eins og það er. Ég eyði ekki einni mínútu í að hugsa um hverjir eru sigurstranglegri og hvar pressan liggur. Ég veit mætavel að innanhúss búa þeir sig undir að vinna leikinn. Af hverju ættu þeir ekki að gera það?“ bætti Tuchel við. Haaland hefur áður reynt að auka pressuna sem verið hefur á mótherjum norska liðsins á HM. Fyrir leikinn við Brasilíu sagði hann sigurlíkur Noregs „verulega litlar“ og hvort sem það hafði áhrif eða ekki þá vann Noregur sannfærandi og verðskuldaðan sigur í þeim leik. Pressan er alltaf gríðarleg á Englandi á stórmótum og ekki víst að ummæli Haalands hafi mikil áhrif í því sambandi. Þjálfari hans, Ståle Solbakken, er hins vegar sammála sínum manni eins og fram kom á blaðamannafundi í gær: „Ég held að það sé meiri pressa á Englandi en okkur, en við setjum líka pressu á okkar eigin frammistöðu. Og þegar leikurinn er hafinn hugsa leikmennirnir ekki svo mikið um pressuna. Þetta eru 11 á móti 11. Þetta snýst miklu meira um umræðuna fyrir fram,“ sagði Solbakken. Leikur Noregs og Englands hefst klukkan 21 í kvöld að íslenskum tíma. Sigurliðið mætir svo sigurliðinu úr leik Argentínu og Sviss, í undanúrslitum á miðvikudagskvöld.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira