Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2026 09:30 Dan Burn tekur hér vel á Erling Braut Haaland í leik Manchester City og Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Robbie Jay Barratt Hver á að vera í miðri vörn Englendinga í leiknum á móti Noregi í kvöld? Sumir stuðningsmenn enska landsliðsins vilja sjá einn ákveðinn mann fá sinn fyrsta byrjunarliðsleik á þessu HM í þessum mikilvæga leik.
Norðmaðurinn Erling Braut Haaland hefur skorað sjö mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum á heimsmeistaramótinu í fótbolta og í kvöld mun enska landsliðið reyna að stöðva hann til að komast í undanúrslitin. Fróðir menn hafa bent á það að Englendingar eigi ás uppi í erminni þegar kemur að þessum stóra og stæðilega Norðmanni. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible) Arsenal-miðvörðurinn Gabriel réð ekki við Haaland í sextán liða úrslitunum þar sem Haaland skoraði bæði mörkin í sigri á Brasilíumönnum. Haaland skoraði líka sigurmarkið á móti Fílabeinsströndinni og tvö mörk í sigurleikjum á Írak og Senegal. Stuðningsmenn Englands telja Dan Burn hins vegar vera fullkominn kost til að mæta Erling Haaland í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Noregi á laugardag, í kjölfar frétta um að þátttaka Marc Guehi í leiknum sé í mikilli óvissu. Gabriel er í hópi bestu miðvarða heims en Haaland er með átta mörk og tvær stoðsendingar í níu leikjum á móti honum. Haaland er hins vegar aðeins með eitt mark og enga stoðsendingu í átta leikjum á móti hinum stóra Dan Burn hjá Newcastle. Umræddir stuðningsmenn trúa því að enska landsliðið eigi einmitt kryptónítið hans Haaland í sínum HM-hóp. View this post on Instagram A post shared by Pengamat Liga Inggris (@pengamatligainggris)
HM 2026 í fótbolta Newcastle United Manchester City Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Fleiri fréttir Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Sjá meira