Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júlí 2026 22:00 Balogun segist skilja að ákvörðunin hafi verið umdeild. Jamie Squire/Getty Images Folarin Balogun, framherji bandaríska landsliðsins, skilur að ákvörðun um að aflétta banni hans fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum á HM sé umdeild. Hann áréttar hins vegar að hann hafi ekkert haft með ferlið að gera.
Ákvörðunin um bann Balogun hefur vakið mikla athygli og ekki síður eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hreykti sig af því að hafa verið ábyrgur fyrir því að FIFA felldi bannið úr gildi. FIFA hefur sætt mikilli gagnrýni vegna málsins, þar á meðal frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA. Balogun varð skyndilega einn frægasti leikmaður mótsins vegna atburðarrásarinnar en hann segist sjálfur ekkert hafa haft með hana að gera. Hann hafi einfaldlega tekið niðurstöðunni þegar hún lá fyrir. Hann segist skilja umræðuna um ákvörðunina. „Auðvitað er það umdeilt þegar ákvörðunin er felld úr gildi,“ sagði Balogun við blaðamenn eftir 4-1 tap Bandaríkjanna fyrir Belgum í leik gærkvöldsins. „Við samþykktum ákvörðunina þegar ég fékk rauða spjaldið og við samþykktum einnig ákvörðunina þegar okkur var sagt að ég mætti spila,“ „Ég tók ekki þátt í ferlinu. Það hafði ekkert með mig að gera persónulega.“ Balogun sagði að hann hefði leitað til þjálfara Belgíu, Rudi Garcia, eftir leikinn til að óska honum til hamingju með sigurinn, og Garcia sagði um samskiptin við Balogun: „Hann kom til mín, mér líkaði það. Hann er ekki ábyrgur. Hann gerði ekkert rangt. Ég virði hann.“ Garcia mun stýra Belgum í 8-liða úrslitum gegn Spáni þann 10. júlí en Bandaríkjamenn eru úr leik eftir tapið í gær.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira