Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Sindri Sverrisson skrifar 7. júlí 2026 08:00 Það var létt yfir Belgum sem dönsuðu að hætti Donald Trump eftir að hafa skotið Bandaríkjunum út af HM. Getty/Jamie Squire Leikmenn Belgíu sögðust eftir sigurinn gegn Bandaríkjunum í nótt hafa viljað svara ranglæti FIFA úti á vellinum. Þeir dönsuðu líka að hætti Donalds Trump Bandaríkjaforseta, eftir pólitísk afskipti hans vegna leikbanns Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna.
Aganefnd FIFA gerði leikbann Baloguns skilorðsbundið á sunnudaginn og hann gat því spilað í nótt þrátt fyrir rauða spjaldið sem hann hafði fengið gegn Bosníu í síðasta leik. Þetta gerði nefndin eftir að Trump hafði haft samband við Gianni Infantino, forseta FIFA, og hreykti Trump sér í gær af sínum þætti í málinu. Balogun krækti í aukaspyrnu í leiknum, og úr henni kom eina eina mark Bandaríkjanna, en það voru Belgar sem fögnuðu sigri, 4-1, og töldu þar með réttlætið hafa sigrað að lokum. Þeir mæta Spáni í 8-liða úrslitum á föstudaginn. „Það er margt búið að ganga á utan vallar síðustu tvo daga,“ sagði Nicolas Raskin, miðjumaður Belgíu, við BBC eftir leik. „Okkur í hópnum fannst um óréttlæti að ræða og við vorum staðráðnir í að svara því á vellinum,“ sagði Raskin. View this post on Instagram A post shared by Belgian Red Devils (@belgianreddevils) Fyrirliðinn Youri Tielemans tók undir þetta og sagði: „Við sögðum við sjálfa okkur að við myndum svara þessu á vellinum. Það er það sem við gerðum.“ Þegar Romelu Lukaku innsiglaði svo sigurinn með marki í uppbótartíma þá benti hann upp í stúku, mögulega í átt að Infantino, og setti fingur upp að eyranu líkt og til að spyrja hvað menn ætluðu núna að gera. Lukaku og félagar stigu svo dans í anda Trump-dansins sem margir þekkja frá því í síðustu forsetakosningum, til að hæðast að afskiptum forsetans. Belgium does Donald Trump dance goal celebration during embarrassing USA World Cup rout https://t.co/7nq6Ltfpek pic.twitter.com/AuWfVsKIiu— New York Post (@nypost) July 7, 2026 „Reynið að snúa þessu við,“ var jafnframt skrifað í kaldhæðnistón á Instagram-síðu belgíska liðsins eftir sigurinn. Rudi Garcia, þjálfari Belgíu, sagði á blaðamannafundi eftir leik að Balogun hefði komið að máli við sig eftir leik. „Ég kunni að meta það. Þetta er ekki honum að kenna og það er það sem ég sagði við hann,“ sagði Garcia sem vildi ekki meina að málið hefði truflað sitt lið. „Burtséð frá byrjunarliði Bandaríkjanna þá skiptir bara máli fyrir okkur hvernig við leggjum leikinn upp. Hópurinn er mjög þroskaður. Ég sagði þeim að það sem mestu máli skipti væri hvað við gerðum,“ sagði Garcia.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira