Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Sindri Sverrisson skrifar 7. júlí 2026 07:07 Charles De Ketelaere átti stjörnuleik gegn Bandaríkjunum í nótt og fagnar hér öðru marka sinna. Getty/Jane Gershovich Spánn og Belgía mætast í 8-liða úrslitum HM í fótbolta á föstudagskvöld, eftir að Belgar slógu heimamenn út með frábærum 4-1 sigri í Bandaríkjunum í nótt.
Í aðdraganda leiksins snerist öll umræðan um pólitísk afskipti Donalds Trump og þá staðreynd að framherjinn Folarin Balogun fengi að spila leikinn þrátt fyrir rauða spjaldið sem hann hafði fengið, í síðasta leik gegn Bosníu. Þrátt fyrir hótanir Belga um að úrslitin yrðu kærð ef Balogun spilaði þá var hann í byrjunarliðinu í nótt en það hjálpaði Bandaríkjamönnum lítið gegn einbeittu og ákveðnu liði Belgíu. Charles De Ketelaere, hinn 25 ára leikmaður Atalanta, var í aðalhlutverki í sigrinum en hann skoraði tvö mörk og lagði svo upp eitt eftir skelfileg markmannsmistök. De Ketelaere skoraði fyrst á 9. mínútu, eftir sókn fram vinstra megin þar sem Leandro Trossard lék í stað Jérémy Doku. Mikil umræða var um afléttingu leikbanns Folarin Balogun fyrir leik en það breytti engu um úrslit leiksins.Getty/Sarah Stier Bandaríkin jöfnuðu á 31. mínútu, úr aukaspyrnu sem Balogun krækti í en úr henni skoraði Malik Tillman með þrumuskoti sem fór af varnarveggnum og í netið. Strax í kjölfarið átti Trossard hins vegar fyrirgjöf á kollinn á De Ketelaere sem kom Belgum í 2-1. Á 57. mínútu vann De Ketelaere svo boltann af Matthew Freese, markverði Bandaríkjanna, og kom honum á Hans Vanaken sem skoraði næsta auðveldlega. Rétt fyrir lokaflautið bætti Romelu Lukaku svo við enn einu marki sínu í landsliðsbúningi Belgíu og innsiglaði öruggan sigur. Hann fagnaði markinu með því að halda á treyju Amadou Onana en Belgar urðu fyrir áfalli í fyrri hálfleik þegar miðjumaðurinn meiddist í hné.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira