Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Sindri Sverrisson skrifar 6. júlí 2026 13:47 Liðsfélögum var brugðið eftir að Jordan Henderson meiddist í nótt. Getty/Martin Fonseca Jordan Henderson spilar ekki meira með Englandi á HM í fótbolta eftir að hafa meiðst þegar hann fagnaði sigrinum gegn Mexíkó í nótt.
Henderson rann til þegar hann hoppaði yfir auglýsingaskilti og meiddist illa á úlnlið. Nú er ljóst að hann þarf á aðgerð að halda og spilar ekki meira á mótinu. 🚨Jordan Henderson’s stats vs Mexico:0 minutes played1 yellow card1 injury1 stretcher off the pitch pic.twitter.com/zfbXwJdbHN— Polymarket Sports (@PolymarketSport) July 6, 2026 Henderson kom ekki við sögu í 3-2 sigri Englands gegn Mexíkó í nótt en hafði spilað sinn 90. A-landsleik þegar hann kom inn á sem varamaður gegn Panama í riðlakeppninni. „Ég er leiður yfir því að Jordan skyldi meiðast á úlnliðnum. Þetta er nokkuð alvarlegt. Hann er á sjúkrahúsi. Þetta passar ekki við það sem hefur gerst hérna í kvöld. Ég veit ekki hvernig ferlið er,“ sagði Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, á blaðamannafundinum eftir leikinn í nótt. Henderson yfirgaf völlinn á sjúkrabörum og var fluttur á sjúkrahús í Mexíkóborg. Hann ferðaðist því ekki með enska liðinu til Kansas City þar sem það er með sínar bækistöðvar. Hinn 36 ára gamli Henderson bætist á meiðslalista Englands á mótinu en áður hafði Tino Livramento meiðst rétt fyrir mótið og Reece James hefur svo misst af tveimur leikjum vegna meiðsla. Þá fékk Jarrell Quansah rautt spjald í nótt og verður væntanlega í leikbanni gegn Noregi í 8-liða úrslitunum á laugardagskvöld, þó það sé ekki alveg eins öruggt eftir undantekninguna sem FIFA gerði vegna rauða spjaldsins sem Bandaríkjamaðurinn Folarin Balogun fékk.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira