Romário segir frammistöðu Brasilíu sorglega Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2026 14:31 Romário heilsar Carlo Ancelotti fyrir leik Brasilíu og Noregs á HM. Eftir leikinn gagnrýndi hann strákana hans Ancelottis harðlega. getty/Europa Press Sports Eins og við mátti búast fóru fjölmiðlar í Brasilíu hörðum orðum um karlalandslið þjóðarinnar í fótbolta eftir að það féll úr leik fyrir Noregi í sextán liða úrslitum á HM.
Brasilíumenn lutu í lægra haldi fyrir Norðmönnum á MetLife-leikvanginum í New Jersey í gær, 1-2. Erling Haaland skoraði bæði mörk norska liðsins en Neymar lagaði stöðuna fyrir það brasilíska í uppbótartíma. Fara þarf aftur til ársins 1990 til að finna jafn slakan árangur hjá Brasilíu á HM en þá datt liðið einnig út í sextán liða úrslitum, fyrir Diego Maradona og félögum í Argentínu. Brassar urðu heimsmeistarar í fimmta sinn 2002 en hafa ekki komist í úrslit HM síðan þá. Romário, sem var valinn besti leikmaður HM þegar Brasilía vann mótið síðast þegar það var haldið í Bandaríkjunum (1994), felldi sinn dóm um frammistöðu brasilíska liðsins fyrir O Globo. Að mati gamla markahróksins vantaði vilja og alvöru fótbolta hjá brasilíska liðinu. Romário sagði jafnframt að frammistaða þess hefði verið sorgleg. „Það er í raun erfitt að benda á hver var verstur eða hver ber höfuðábyrgð á fullkomlega verðskulduðu tapi gegn Noregi,“ skrifaði Romário sem skoraði 55 mörk í sjötíu landsleikjum á sínum tíma. Í umfjöllun O Dia segir að brasilíska liðið hafi horft á meðan Noregur spilaði fótbolta. Brassar voru aðeins 34 prósent með boltann í leiknum í gær. Carlo Ancelotti tók við brasilíska landsliðinu í maí í fyrra en hann er fyrsti erlendi þjálfarinn sem stýrir því. Í maí síðastliðnum framlengdi Ancelotti samning sinn við brasilíska knattspyrnusambandið fram yfir HM 2030.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira