Hetjurnar frá 1998 telja að Noregur geti orðið heimsmeistari Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2026 13:00 Kjetil Rekdal skoraði sigurmark Noregs gegn Brasilíu á HM í Frakklandi 1998. Hann telur að Norðmenn geti farið alla leið á HM 2026. getty/Tony Marshall Hlegið var að sérfræðingi NRK í fyrra þegar hann lýsti því yfir að Noregur gæti orðið heimsmeistari í fótbolta. En eftir frábært gengi Norðmanna á HM í Norður-Ameríku eru fleiri farnir að taka undir með honum.
Noregur tryggði sér sæti í átta liða úrslitum HM með 1-2 sigri á Brasilíu á MetLife-leikvanginum í New Jersey í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem Norðmenn komast svona langt á HM. „Það er svo dásamlegt að einhver dragi þetta fram. Ég var fyrstur til að segja það,“ sagði Torp þegar hann var minntur á ummæli sín eftir 11-1 sigur Noregs á Moldóvu á síðasta ári. Þá sagði hann að Norðmenn gætu orðið heimsmeistarar. Flestir töldu að Torp hefði tekið full djúpt í árinni, þar á meðal Ståle Solbakken, þjálfari norska liðsins. Solbakken var leikmaður norska liðsins síðast þegar það keppti á HM. Í Frakklandi 1998 vann Noregur einmitt Brasilíu með sömu markatölu. Mennirnir sem skoruðu mörk Norðmanna í leiknum í Marseille fyrir 28 árum, Kjetil Rekdal og Tore André Flo, eru nú komnir á sömu skoðun og Torp og telja að Noregur geti farið alla leið á HM. „Við getum unnið HM,“ sagði Rekdal eftir leikinn í gær. „Á góðum degi getum við unnið hvaða lið sem er. Það eru líka sex dagar í næsta leik.“ Flo tók undir með Rekdal varðandi möguleika norska liðsins í framhaldinu. „Við unnum Brasilíu á frábæran hátt. Mér fannst þetta mjög góður leikur hjá Noregi. Ef við getum gert þetta gegn Brasilíu getum við gert það gegn öllum öðrum liðum,“ sagði Flo sem skoraði jöfnunarmark Noregs gegn Brasilíu í leiknum á HM 1998 á 83. mínútu. Sex mínútum síðar skoraði Rekdal sigurmark norska liðsins úr vítaspyrnu. Flo segir að Noregi séu allir vegir færir með Erling Haaland í fremstu víglínu. Hann skoraði bæði mörkin gegn Brasilíu og er markahæstur á HM ásamt Lionel Messi og Kylian Mbappé. „Hver getur stöðvað þennan gaur frammi?“ sagði Flo um Haaland sem hefur skorað 62 mörk í 54 landsleikjum fyrir Noreg. Í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins mæta Norðmenn Englendingum. Leikurinn fer fram í Miami á laugardaginn.
HM 2026 í fótbolta Norski boltinn Noregur Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira