Maður dagsins á HM: „Býflugan“ fann gleðina aftur í Katalóníu Andri Broddason skrifar 5. júlí 2026 11:00 Azzedine Ounahi hefur spilað frábærlega á síðustu tveim heimsmeistaramótum. Kevin C. Cox/Getty Images Azzedine Ounahi hefur spilað frábærlega á heimsmeistaramótinu og skoraði fyrstu tvö mörk Marokkó í gær gegn Kanada. Marokkó tryggði sig í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins í gær en liðið mætir þar Frakklandi.
Ounahi er fæddur og uppalinn í Marokkó en flutti átján ára til Frakklands þar sem hann gekk til liðs við akademíu Strasbourg. Leikmaðurinn vakti ekki athygli fyrr en á heimsmeistaramótinu árið 2022 sem haldið var í Katar. Þar átti Marokkó frábært mót og endaði í fjórða sæti mótsins. Fyrir síðasta heimsmeistaramót hafði Marokkó aldrei komist lengra en í 16-liða úrslit mótsins. Í 16-liða úrslitum síðasta heimsmeistaramóts sló Marokkó út Spán eftir vítaspyrnukeppni. Í viðtali eftir leik hrósaði Luis Enrique, þjálfari Spánar, Ounahi mikið og gaf honum viðurnefnið „áttan“ (S. El Número Ocho). Eftir heimsmeistaramótið í Katar var mikil eftirspurn eftir leikmanninum og endaði hann á því að fara til franska stórveldisins Marseille. Þaðan fór hann að láni til Panathinaikos í Grikklandi en hann náði sér aldrei almennilega á strik. Hann fann fyrir mikilli vanlíðan og það smitaðist í lélega framistöðu inni á vellinum. Síðasta sumar fór hann yfir til Girona á Spáni sem spilar í B-deildinni þar. SamkvæmtiOunahi er þetta besta ákvörðun sem hann hefur tekið þar sem hann fann aftur gleðina við að spila fótbolta. Hann byrjaði að vinna með persónulegum þjálfara sem hjálpaði honum með mataræði og aukaæfingar. Ounahi hefur reglulega verið kallaður „býflugan“ í Marokkó þar sem hann vinnur mikið á miðju vallarins. Hann nær að dekka stóran hluta vallarins og er alltaf mættur til að passa sitt mark. Í gær sýndi hann að hann getur einnig staðsett sig í sókn í báðum mörkum hans gegn Kanada.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira