Nýr þjálfari Ronaldo og félaga Andri Broddason skrifar 3. júlí 2026 19:02 Ange Postecoglou hefur tekið við sem þjálfari Al Nassr í Sádí Arabíu. Catherine Ivill - AMA/Getty Images Ástralinn Ange Postecoglou hefur verið ráðinn sem þjálfari Al Nassr í Sádí Arabíu. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Ange Postecoglou hefur flakkað milli liða á síðustu árum og nú hefur hann fundið sér nýtt lið í Sádí Arabíu. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið og mun þjálfa þar leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo og Sadio Mane. It's official: ✍️Mr. Ange Postecoglou is the new Head Coach of @AlNassrFC 💛He signed a contract for 2 seasons.Welcome, Gaffer! 🧠 pic.twitter.com/LEStlTdnQy— AlNassr FC (@AlNassrFC_EN) July 3, 2026 Postecoglou byrjaði þjálfaraferilinn sinn í heimalandi sínu Ástralíu. Þar þjálfaði hann unglingalandsliðið og færði sig síðan yfir í félagsliðin þar í landi. Árið 2021 fékk hann fyrsta þjálfarastarfið sitt í Evrópu þegar hann byrjaði að þjálfa sögufræga liðið Celtic frá Skotlandi. Hann var sigursæll þar og vann fimm titla fyrir Celtic á aðeins tveim tímabilum. Eftir gott gengi hjá Celtic var hann ráðinn sem þjálfari Tottenham og var hann þar einnig í tvö tímabil. Á fyrsta tímabilinu hans endaði hann í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og tryggði liðinu sæti í Evrópudeildinni. Tímabilið 2024-2025 setti Postecoglou alla einbeitingu á gengi liðsins í Evrópudeildinni og hugsaði minna um gengi liðsins í deildinni. Hann endaði á að vinna Evrópudeildina eftir að hafa unnið Manchester United í úrslitaleiknum. Þetta var fyrsti Evróputitill Tottenham síðan 1984. Þrátt fyrir að hafa unnið Evrópudeildina þá endað hann í sautjánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Það var aðeins einu sæti fyrir ofan fall og var það óásættanlegt að mati stjórnar Tottenham sem ákvað að reka Postecoglou í júní 2025. Í september sama ár er Postecoglou ráðinn til Nottingham Forest eftir að Nuno Espirito Santo var rekinn frá félaginu snemma á tímabilinu. Sú dvöl varði stutt en Postecoglou var rekinn þaðan rétt rúmum mánuði síðar. Tilkynningin um brottför hans barst aðeins átján mínútum eftir að Nottingham Forest tapaði gegn Chelsea á heimavelli 3-0. Postecoglou tekur við af Jorge Jesus hjá Al Nassr en hann steig frá þjálfun félagsins eftir að hafa unnið úrvalsdeildina í Sádí Arabíu með félaginu. Postecoglou getur því gert Cristiano Ronaldo og félaga í Al Nassr að Sádí Arabíumeisturum annað tímabilið í röð.
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Sjá meira