Maður dagsins á HM: Harry Kane hoppaði upp fyrir Pelé Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2026 10:02 Harry Kane fagnar hér jöfnunarmarki sínu sem létti heldur betur pressuna af enska landsliðinu í þessum erfiða leik við Kongó. Getty/Chris Brunskill Harry Kane kom enska fótboltalandsliðinu til bjargar á móti Kongómönnum í gær og sá öðrum fremur til þess að liðið spilaði í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar.
Kane skoraði tvisvar á lokakafla leiksins og tryggði enska landsliðinu 2-1 sigur eftir að liðið hafði verið undir frá sjöundu mínútu og alls í 68 taugatrekkjandi mínútur. Kane fór með þessum tveimur mörkum fram úr Pelé í heildarfjölda marka á HM en markafjöldi hans er nú þrettán. Aðeins nokkrum mínútum eftir að hafa jafnað metin fyrir England á 75. mínútu með laglegum skalla þrumaði Kane boltanum í netið með stórkostlegu skoti og kom Englendingum yfir. Það reyndist vera sigurmarkið í leiknum. CAPTAIN KANE TO THE RESCUE 🙌🏴That's his 12th World Cup goal, putting him level with Pele!#FifaWorldCup pic.twitter.com/tRsnndOTj2— BBC Sport (@BBCSport) July 1, 2026 Kane sló met Gary Lineker og varð markahæsti leikmaður Englands á HM frá upphafi þegar hann skoraði í 2-0 sigrinum á Panama á laugardaginn og fagnar nú nýjum áfanga. Brasilíska goðsögnin Pelé skoraði 12 mörk í aðeins 16 leikjum á HM og er eini leikmaður sögunnar til að vinna þrjá heimsmeistaratitla – árin 1958, 1962 og 1970. Kane gerði betur því þrettán mörk hans komu í aðeins fimmtán leikjum. Kane hefur skorað 20 mörk á stórmótum fyrir England og er þegar markahæsti leikmaður liðsins frá upphafi með 84 mörk í 117 leikjum. Hann vann Gullskóinn á HM 2018 með því að skora sex mörk á leið Englands í undanúrslitin og vantar nú aðeins eitt mark til að jafna þann árangur. Fyrirliði Englands hefur þar með skorað 72 mörk fyrir félagslið (Bayern München) og landslið á tímabilinu. Hann hefur nú skorað fimm mörk á þessu heimsmeistaramóti og kapphlaupið um Gullskóinn er orðið að spretti milli Kane, Kylian Mbappé, Erling Haaland og Lionel Messi. Landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel sagði um þá: „Þeir eru allir hákarlar. Þeir finna blóðlykt.“ Tuchel bætti við: „Þessir stóru strákar á þessu heimsmeistaramóti, fylgjast þeir hver með öðrum? Og svo hugsa þeir „ekki á minni vakt, þá skora ég, svo skora ég þrennu, svo er komið að þér“. Hvað er í gangi? Geggjað,“ sagði Tuchel. „Harry er svo, svo góður. Hann er fyrirliðinn okkar. Hann er leiðtoginn okkar. Hann ræður úrslitum fótboltaleikja með ótrúlegum afgreiðslum og gerði það tvisvar hér. Seinna markið var bara stórkostlegt,“ sagði Tuchel. 𝗛𝗔𝗥𝗥𝗬 𝗞𝗔𝗡𝗘 𝗚𝗢𝗘𝗦 𝗣𝗔𝗦𝗧 𝗣𝗘𝗟𝗘! 🤩✨🏴🏴 Harry Kane: 13🇧🇷 Pelé: 12Kane now has more FIFA World Cup goals than Pelé. Don’t rule him out in the race for the all-time record! 🥶👀#HarryKane #England #Brazil #Pelé #FIFAWorldCup #WC2026 pic.twitter.com/95VUfrKyJe— Sportskeeda Football (@skworldfootball) July 1, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira