Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2026 12:04 Lucas Paquetá tognaði aftan í læri í sigrinum á Japan og gæti misst af restinni af heimsmeistaramótinu. Getty/David Buono Lucas Paquetá verður ekki klár í sextán liða úrslitin hjá Brasilíu á HM þar sem liðið mætir Noregi. Brasilíska knattspyrnusambandið staðfestir meiðsli byrjunarliðsmannsins.
Það er brasilíska dagblaðið Globo sem segist hafa heimildir fyrir því að miðjumaðurinn komi ekki til greina í leikinn gegn Noregi. Paquetá fór í myndatöku á þriðjudag eftir að hafa þurft að yfirgefa völlinn í sigri Brasilíu á Japan í 32-liða úrslitum. Rannsóknirnar sýndu meiðsli aftan í vinstra læri. 🚨⚠️ Lucas Paquetá will miss Brazil next game against Norway due to injury. pic.twitter.com/5suy6FkoVx— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 1, 2026 „Leikmaðurinn mun gangast undir öfluga meðferð undir eftirliti læknateymis brasilíska landsliðsins með það að markmiði að ná bata og snúa aftur til leiks eins fljótt og auðið er,“ skrifar brasilíska sambandið. Svona vöðvatognanir eru erfiðar viðureignar og allt eins víst að miðjumaðurinn hafi spilað sinn síðasta leik á heimsmeistaramótinu, sama hversu langt liðið kemst. Fjarvera hans er verulegt áfall fyrir Brasilíu fyrir leikinn gegn Noregi, þar sem landsliðið þarf að finna staðgengil fyrir þennan skapandi miðjumann sem hefur verið fastamaður í liðinu. Lucas Paquetá lék áður með West Ham frá 2022 til 2026 en er nú leikmaður Flamengo í heimalandinu. Hann missti af sex leikjum Brasilíu í undankeppninni og liðið tapaði þremur þeirra. "Paquetá está praticamente fora da Copa"Pedro Ivo Almeida traz todas as informações direto dos EUA.A preocupação em torno de Lucas Paquetá se confirmou nesta terça-feira (30). Após exames de imagem, a CBF anunciou que o meia da Seleção Brasileira sofreu uma lesão muscular na… pic.twitter.com/7VF7s7ozcl— SportsCenter Brasil (@SportsCenterBR) June 30, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Sjá meira