Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 15:00 Hong Myung-Bo er hættur sem þjálfari Suður-Kóreu en það er ekki nóg fyrir Suður-Kóreumenn sem reyna allt til að gera honum lífið óbærilegt. Getty/Carl Recine Hong Myung-Bo hefur átt mjög erfiða daga síðan að suðurkóreska landsliðið datt úr leik á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Nú hefur fráfarandi þjálfari suðurkóreska landsliðsins fengið líflátshótanir.
Þegar Suður-Kóreumenn lenda aftur í Suður-Kóreu eftir HM munu 160 lögreglumenn taka á móti liðinu, að því er The Herald Business greinir frá. Áætlunin um stóraukna öryggisgæslu kemur í kjölfar nokkurra hótana á netinu og nafnlausrar líflátshótunar sem beint var að Hong Myung-Bo. Einn aðili hótaði að fara á Incheon-flugvöll þegar landsliðið snýr aftur til Suður-Kóreu til að drepa Myung-Bo. Þess vegna er búist við að 160 lögreglumenn úr sérsveit og flugvallarlögreglunni verði staðsettir á Incheon-flugvelli. Auk þess verða 25 öryggisverðir á staðnum til að grípa inn í ef til atvika kemur. Hong Myung-bo has resigned as head coach of South Korea. ❌The early exit has prompted widespread criticism at home, with President Lee Jae Myung calling for an investigation into reasons behind the team's disappointing performance. pic.twitter.com/IW6yGZHFy6— BBC Sport (@BBCSport) June 29, 2026 „Við höfum ákveðið að kalla til lögreglu til að koma í veg fyrir öryggisatvik sem gætu komið upp í tengslum við komu liðsins. Ef einhverjar ólöglegar athafnir eiga sér stað, til dæmis að hlutum sé kastað, munum við bregðast við af fullum þunga,“ sagði talsmaður lögreglunnar við The Herald Business. Landslið Suður-Kóreu hefur fengið harða gagnrýni eftir HM-fiaskóið og Myung-Bo er sá sem hefur verið gagnrýndur harðast. Á síðasta blaðamannafundi hans ákvað sjónvarpsstöð í landinu að „blurra“ hann í beinni. Lee Jae-Myung, forseti Suður-Kóreu, lét einnig vaða á samfélagsmiðlinum X og sakaði þjálfarann um vanhæfni. „Ég er ekki bara undrandi á þessari óvæntu niðurstöðu heldur er ég gjörsamlega furðu lostinn. Enn og aftur hefur sannast að ákvarðanir sem varða einstaklinga eru allt. Þegar „við á móti þeim“ er sett ofar hæfni og vanhæfur einstaklingur er valinn sem leiðtogi er niðurstaðan augljós,“ skrifaði Lee á X. Áður en landsliðið náði að yfirgefa gestgjafaþjóðina Mexíkó hafði Myung-Bo sagt af sér sem landsliðsþjálfari. Hann var þjóðhetja sem leikmaður á HM 2002 þegar liðið komst alla leið í undanúrslitin á HM. HM-ævintýrið í ár tók enda hjá Suður-Kóreu eftir töp gegn Suður-Afríku og Mexíkó og einn sigur í opnunarleiknum gegn Tékklandi. The Korean media is doing the absolute most right now. 🇰🇷📺Broadcaster KBS literally went all the way to Monterrey to investigate the team’s hotel, trying to see if the accommodations were to blame for the poor performance against South Africa.To make it worse, they even… pic.twitter.com/uyBXfp3gtW— Ultras Clips (@ultras_clips) June 28, 2026
HM 2026 í fótbolta Suður-Kórea Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira