Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Andri Broddason skrifar 29. júní 2026 21:38 Afturelding vann stórsigur á Ægi í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Afturelding vann stórsigur á heimavelli gegn Ægi í Lengjudeild karla í kvöld. Afturelding skoraði átta mörk og Ægir átti vægast sagt martraðarkenndan leik.
Leikurinn byrjaði illa fyrir Ægi en Joacim Holtan náði að komast í lélega sendingu til baka á Ómar Castaldo í marki Ægis og skora á annarri mínútu leiksins. Afturelding hélt áfram að fá dauðafæri og var áberandi betri aðilinn í leiknum. Á 37. mínútu bætti Sævar Atli Hugason við öðru marki Aftureldingar eftir frábæra sendingu frá Birki Má Sævarssyni. Afturelding náði þó ekki að sigla þessu þægilega í höfn en undir lok fyrri hálfleiks náði Bjarki Rúnar Jónínuson að minnka muninn fyrir Ægi. Seinni hálfleikurinn varð að hreinni martröð fyrir Ægi og liðið einfaldlega hrundi. Mikið var um að varnarmenn misstu boltann og það gerðist á 49. mínútu þegar varnarmenn Ægis gáfu Joacim Holtan dauðafæri sem hann nýtti. Aðeins fimm mínútum síðar voru varnarmenn Ægis með boltann í sínum eigin teig og Holtan einfaldlega tæklaði boltann af þeim beint í markið. Þetta var þriðja mark Holtan í leiknum. Á 59. mínútu bætir Óðinn Bjarkason við fimmta marki Aftureldingar eftir góða skyndisókn og eftir það missir Ægir endanlega hausinn. Stefan Dabetic, leikmaður Ægis, er réttilega rekinn út af vellinum með rautt spjald eftir að hafa traðkað á hausnum á Bjarti Bjarma Barkasyni. Þetta er hegðun sem maður vill ekki sjá á fótboltavellinum. Að vera manni færri bætti aðeins gráu ofan á svart fyrir Ægi en Afturelding bætti þremur mörkum við á síðustu 25 mínútum leiksins. Róbert Agnar Daðason skoraði sjötta mark Aftureldingar og síðustu tvö mörkin voru bæði úr horni sem Trausti Þráinsson tók. Óðinn Bjarkarson skoraði úr fyrra horninu en Aron Elí Sævarsson úr því seinna. Afturelding vann því stórsigur á heimavelli en lokatölur leiksins voru 8-1. Þetta var mikilvægur sigur fyrir Aftureldingu sem er í öðru sæti Lengjudeildarinnar, einu stigi frá toppliði Þróttar. Ægir er eftir leikinn í ellefta sæti, aðeins einu stigi frá botnliði Völsungs.
Lengjudeild karla Afturelding Ægir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sjá meira