Óvæntur og „ótrúlega mikill heiður“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. júní 2026 10:30 Varnarmenn Austurríkis lentu í vandræðum með Ingibjörgu. Judit Cartiel - UEFA Þrátt fyrir að hafa slegið í gegn í Bestu deildinni í sumar með liði FH átti hin sautján ára gamla Ingibjörg Magnúsdóttir ekki von á því að vera kölluð inn í landsliðshóp Íslands fyrir Evrópumót U19. Hún var ekki lengi að láta til sín taka á fyrsta stórmótinu.
Ingibjörg tók engan þátt í undankeppni EM U19 heldur var hún hluti af undankeppni U17 landsliðsins, sem hún er enn gjaldgeng í. Frammistöður hennar að undanförnu hafa hins vegar vakið mikla athygli og Ingibjörg, sem hefur skorað 6 mörk og gefið 3 stoðsendingar í 11 leikjum á tímabilinu fyrir FH, var verðlaunuð með sæti í hópnum á lokamóti EM U19. Hún spilaði allan seinni hálfleikinn í fyrsta leik Íslands í gær, í 3-0 tapi gegn Austurríki. Skiljanlega voru úrslitin svekkjandi en hún var stolt af því að spila sinn fyrsta leik á stórmóti fyrir íslenska landsliðið. „Þetta er ótrúlega mikill heiður og ég er mjög þakklát fyrir traustið sem ég fæ,“ sagði Ingibjörg í viðtali við blaðamann Vísis í Bosníu og Hersegóvínu eftir leikinn gegn Austurríki í gær. Hraði og kraftur á hægri kantinum Hún var líka ekki lengi að láta til sín taka, strax í upphafi seinni hálfleiks sýndi hún ógnarhraðann sem býr í henni með góðum spretti upp hægri kantinn. „Ég ætlaði bara að reyna að breyta leiknum, einhvern veginn. Því miður gekk það ekki, ég fékk nokkur færi en því miður datt þetta ekki með okkur,“ sagði Ingibjörg. Mörkin skiluðu sér ekki úr færunum sem Ingibjörg kom sér í, en hún sýndi að hún á vel heima á þessu móti þrátt fyrir að vera tveimur árum yngri en flestar andstæðingar sínir á EM U19. Hún átti þó ekki von á því að vera hér. „Ég var ekkert með þetta á bak við eyrað en þetta er bara mjög mikill sigur fyrir mig.“ Ingibjörg í leiknum gegn Austurríki í gær. Judit Cartiel - UEFA Hvað heldurðu að hafi skilað þér hingað? „Ég veit það ekki, bara dugnaður, og jú hraðinn,“ sagði Ingibjörg brosandi að lokum. Tók við af Thelmu Karen og fer líklega sömu leið Segja mætti að Ingibjörg hafi leyst af hólmi eina efnilegustu knattspyrnukonu Íslands, Thelmu Karen Pálmadóttur, bæði hjá FH og núna hjá U19 landsliðinu. Thelma Karen sló í gegn á hægri kantinum hjá FH í fyrra, var seld fyrir metfé til BK Hacken í Svíþjóð og hefur nú stigið skrefið upp í A-landsliðið, þrátt fyrir að vera enn aðeins átján ára gömul. Ingibjörg hefur eignað sér stöðuna hjá FH og öðlast sæti í U19 landsliðinu, sem Thelma Karen er gjaldgeng í en spilar ekki fyrir á þessu móti. Fastlega er búist við því að Ingibjörg fylgi enn frekar í fótspor Thelmu og verði seld út til atvinnumannaliðs erlendis fljótlega. „Það er frábært að hún sé að taka svona vel við þessu. Ég er ógeðslega stolt af henni, hún er ein mín besta vinkona… Ég dýrka að horfa á hana spila og sjá hvað henni gengur vel. Ég er ekkert smá stolt af henni… Hún getur allt sem hún vill. Ég hlakka til að sjá hana fara út og spila á móti henni einhvers staðar. Eða með henni," sagði Thelma Karen í viðtali við Fótbolta.net nýlega.
Landslið kvenna í fótbolta FH Tengdar fréttir Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Halldór Jón Sigurðsson er mættur á sitt fyrsta stórmót sem landsliðsþjálfari og segir gott að hafa loksins tíma til að sinna því sem hann gerir best, eftir að hafa starfað í allt öðruvísi umhverfi áður. Spennan er mikil fyrir fyrsta leik Íslands á EM U19 kvenna gegn Austurríki síðar í dag. 28. júní 2026 09:02 Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira
Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Halldór Jón Sigurðsson er mættur á sitt fyrsta stórmót sem landsliðsþjálfari og segir gott að hafa loksins tíma til að sinna því sem hann gerir best, eftir að hafa starfað í allt öðruvísi umhverfi áður. Spennan er mikil fyrir fyrsta leik Íslands á EM U19 kvenna gegn Austurríki síðar í dag. 28. júní 2026 09:02