Er „tölvuboltinn“ að trufla markverðina á HM? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 11:02 Senegalinn Edouard Mendy horfir á eftir langskoti Frakkans Kylian Mbappe fara í markið. Getty/Dan Mullan Það hefur verið nóg af mörkum með langskotum á heimsmeistaramótinu í fótbolta og fyrrverandi enskur landsliðsmarkvörður telur að það sé mjög sérstök ástæða fyrir því að boltinn endi í netmöskvunum aftur og aftur.
Á heimsmeistaramótinu í ár hafa þegar verið skoruð 31 mörk fyrir utan vítateig en það er þrisvar sinnum meira en á öllu heimsmeistaramótinu fyrir fjórum árum, þar sem fjöldinn var vissulega mjög lágur. Er skottæknin orðin betri eða er markvarslan verri? Joe Hart, fyrrverandi markvörður enska landsliðsins, hefur sett fram athyglisverða tilgátu um hvers vegna markverðir misreikna langskotin aftur og aftur. Kemur markvörðum mótsins til varnar „Ég hef tekið eftir þessu með nokkur af hærri skotunum,“ sagði Joe Hart um langskotin í stúdíói BBC snemma á mótinu. Hann kemur markvörðum mótsins til varnar og telur að boltinn sé ástæðan fyrir því að langskot sem fara í mark séu í hrönnum. Í nokkrum skotanna hafa markverðirnir náð fingrunum í boltann, en ekki nógu snemma til að koma í veg fyrir að hann fari í mark. Joe Hart is one of the best pundits his analysis on the World Cup ball is just class pic.twitter.com/pZjpqk7ubo— Danis (@DanisMCFC) June 19, 2026 „Þetta er ekki frábært skot, þetta er gott skot, en Luca Zidane er meira en fær um að verja þann bolta. En aftur, hann tímasetur það ekki rétt, sagði Joe Hart um langskot Messi gegn Alsír í opnunarumferðinni. „Hann endar á því að ýta boltanum áfram, frekar en að ýta honum yfir þverslána,“ hélt Hart áfram. Kemur hraðar Hart telur að boltinn komi hraðar á markverðina en þeir eru vanir og að þeir eigi í erfiðleikum með að reikna út boltaleiðina. Þetta á sérstaklega við um skotin í axlarhæð. Joe Hart says there’s ’something up’ with the World Cup ball after seeing the same goals https://t.co/7XiyzpYkEb pic.twitter.com/tb4hKh9oik— LADbible (@ladbible) June 27, 2026 „Ég held að eftir því sem líður á mótið og strákarnir verða vanari andrúmsloftinu og hraða boltans, og þessum sérstöku HM-boltum, þá munum við sjá þessi skot verða varin. Ég sé þessa tegund af mörkum allt of oft á HM til að það sé ekki eitthvað að þessum fótbolta,“ sagði Hart að lokum. Jabulani-boltinn á HM 2010 Það eru fleiri líkindi með móti ársins og HM árið 2010 en að opnunarleikurinn hafi þá einnig verið spilaður milli Suður-Afríku og Mexíkó. „Við munum jú öll eftir Jabulani-boltanum frá HM 2010, sem var mikið ræddur vegna þess að hann flökti gríðarlega mikið í loftinu, segir Carl-Erik Torp, sérfræðingur norska ríkisútvarpsins í umfjöllun um boltann og fjölda marka með langskotum. Bæði fyrir, á meðan og eftir HM í Suður-Afríku var opinberi HM-boltinn heitt umræðuefni. Nokkrir markverðir brugðust við boltanum. Fyrirliði og markvörður Spánar, Iker Casillas, lýsti boltanum meðal annars sem „strandbolta“. Gagnrýnin snerist um að boltinn sveiflaðist í loftinu og gerði það erfitt fyrir markverðina að reikna út boltaleiðina – sérstaklega í langskotum. Á mótinu voru skoruð heil 26 mörk úr langskotum, það mesta bæði í prósentum af heildarmörkum og mörkum á leik á síðustu mótum. Reyndar þurfti Adidas að stíga fram til að afsanna að boltinn hefði verið gerður svona viljandi til að fá fleiri glæsileg mörk. Haldi áfram að blekkja markverðina Nú hefur bolti ársins einnig fengið svipaða gagnrýni og það verður spennandi að sjá hvort langskotin haldi áfram að blekkja markverðina í útsláttarkeppninni. Áður en mótið hófst hefur bolti ársins fengið athygli fyrir hátæknilega hönnun sína. Boltinn inniheldur skynjara sem þarf að hlaða og sem á að hjálpa Jafnvel áður en mótið hófst hefur bolti ársins vakið athygli fyrir hátæknilega hönnun sína. Boltinn inniheldur skynjara sem þarf að hlaða og sem á að aðstoða VAR í tengslum við dómsúrskurði. Það er því auðvelt að draga þá ályktun að þessi „tölvubolti“ sé hreinlega að trufla markverðina á HM með því að haga sér öðruvísi en þeir eru vanir.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira