Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2026 08:30 Arda Guler fagnar marki í 3-2 sigri Tyrkja á Bandaríkjamönnum. Getty/Alex Grimm Tyrkland hefur ekki átt miklu að fagna á HM 2026 en tekur engu að síður óopinbera heimsmeistaratitilinn með sér heim af mótinu.
Opinberlega var ekkert annað en heiðurinn í húfi fyrir Tyrkland þegar liðið mætti Bandaríkjunum aðfaranótt föstudags í síðasta leik liðanna í riðlakeppni HM. Tyrkir voru því öruggir með að enda í neðsta sæti D-riðils eftir töp gegn Ástralíu og Paragvæ, á meðan gestgjafaþjóðin hafði þegar tryggt sér efsta sætið með sigrum gegn sömu andstæðingum. Óopinberlega var það hins vegar allt annað mál. Fyrir leikinn sátu Bandaríkin nefnilega á titlinum „óopinber heimsmeistari“ – titli sem hefur skipt um eigendur 252 sinnum í 1047 leikjum í meira en 150 ár. Óopinbera heimsmeistaramótið nær allt aftur til fyrsta landsleiksins árið 1872, þegar England og Skotland gerðu 0-0 jafntefli í vináttuleik. Ári síðar mættust þau aftur og þegar England vann 4-2 við það tækifæri urðu þeir fyrstu óopinberu heimsmeistararnir. Rökfræðin á bak við þetta sérstaka „meistaramót“ er afar einföld; maður heldur bikarnum þar til maður tapar leik – og það gerðu Bandaríkin, eins og kunnugt er, gegn Tyrklandi snemma á föstudagsmorgun. Þar með tekur Tyrkland titilinn af Bandaríkjunum, sem unnu hann af Ástralíu, sem í raun tóku hann af Tyrkjum, sem komu á opinbera HM með titilinn óopinberir heimsmeistarar – og ferðast nú aftur til heimalandsins með titilinn í höndunum, þótt hann hafi skipt um eigendur nokkrum sinnum undanfarnar vikur. Það afrek er í raun nokkuð sérstakt, því það gerir Tyrkland að fyrsta liðinu sem „ver“ titilinn á opinberu HM – þótt það hafi varla verið á þann hátt sem þeir höfðu vonast til. Turkey become 'unofficial world champions' despite crashing out at World Cup group stage https://t.co/bxNMktYZ4Z pic.twitter.com/fnMMFDP7z3— SPORTbible (@sportbible) June 26, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira