Líkur Skota á að komast áfram fóru úr 42 prósentum í 5,3 prósent á einum degi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júní 2026 14:47 Nánast engar líkur eru á að Skotar verði í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. getty/Martin Rickett Eftir úrslit síðasta sólarhrings eru möguleikar Skotlands á að komast í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta nánast að engu orðnir. Nú eru aðeins 5,3 prósent líkur á að Skotar komist í útsláttarkeppnina.
Skotland tapaði 0-3 fyrir Brasilíu í lokaleik sínum í C-riðli. Liðið endaði í 3. sæti riðilsins með þrjú stig og markatöluna 1-4. Efstu tvö liðin í riðlunum tólf á HM komast í 32-liða úrslit sem og átta af þeim tólf liðum sem eru með bestan árangur í 3. sæti riðlanna. Samkvæmt úttekt BBC voru möguleikar Skota á að komast áfram 70,7 prósent fyrir leikinn gegn Brasilíumönnum. Eftir leikinn voru líkurnar 42,7 prósent. Úrslit fjögurra leikja í öðrum riðlum gerðu svo illt verra fyrir Skotland. Eftir sigur Suður-Afríku á Suður-Kóreu fóru líkur Skotlands niður í 24,4 prósent, niður í níu prósent eftir sigur Ekvadors á Þýskalandi, niður í 6,6 prósent eftir jafntefli Svíþjóðar og Japans og 5,3 prósent eftir að Paragvæ og Ástralía skildu jöfn. Steve Clarke, þjálfari skoska liðsins, var ekki upplitsdjarfur eftir tapið gegn Brasilíu og sagðist nokkuð viss um að þátttöku Skotlands á HM væri lokið. „Ég er nokkuð viss um að við séum á heimleið. Aðeins Skotland getur unnið fyrsta leik sem hægt var að vinna og svo fengið fimmta og sjötta besta lið heims,“ sagði Clarke og vísaði þar til Brasilíu og Marokkó. Eins og staðan er núna er Skotland í 8. sæti af þeim tólf liðum sem eru í 3. sæti riðlanna á HM. Riðlakeppninni er þó ekki lokið og lið geta skotist upp fyrir Skotana. Keppni í átta riðlum er ólokið. Til að komast áfram þurfa Skotar að treysta á að fjögur af þeim liðum sem enda í 3. sæti riðlanna séu með verri árangur en þeir. Skotar eru á sínu níunda heimsmeistaramóti en þeir hafa aldrei komist upp úr sínum riðli. Þeim hefur heldur ekki tekist það á þeim fjórum Evrópumótum sem þeir hafa keppt á. Skotland sigraði Haítí, 0-1, í fyrsta leik sínum í C-riðli, tapaði svo fyrir Marokkó, 0-1, og Brasilíu, 0-3.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira