Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2026 12:02 Neymar Jr. bregður hér á leik í myndatöku brasilíska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið. Getty/Dustin Satloff Brasilíumenn mæta Skotum í kvöld í lokaumferðinni í riðli þeirra á heimsmeistaramótinu í fótbolta og þetta verður líklega í fyrsta sinn sem við sjáum risastjörnu brasilíska landsliðsins á þessu móti.
Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, staðfesti í gær að Neymar verði leikfær gegn Skotlandi. Þegar Ancelotti var spurður hvernig Neymar liði sagði hann: „Hann er klár, hann æfði mjög vel í vikunni, hann er í góðu formi og tilbúinn að spila. Við erum mjög ánægðir með að hann sé kominn aftur, hann er gæðaleikmaður,“ sagði Ancelotti. Ancelotti foi questionado quantos minutos Neymar pode jogar amanhã e respondeu: “eu posso jogar 90 minutos caminhando. Neymar está bem, pode jogar, estou muito feliz com ele” pic.twitter.com/LBmTNVdCHt— Raisa Simplicio (@simpraisa) June 24, 2026 „Hann getur spilað hálfan leikinn eða allar 90 mínúturnar. Honum líður mjög vel, hann hefur lagt mikið á sig og er því tilbúinn,“ sagði Ancelotti. Neymar hefur ekki spilað landsleik síðan 18. október 2023 en hann hefur glímt við fjölda meiðsla síðan þá og meðal annars krossbandsslit. Hann er með 79 mörk og 59 stoðsendingar í 128 landsleikjum og enginn hefur skorað fleiri mörk fyrir brasilíska landsliðið. All football fans need now is to see a vintage Neymar performance at this World Cup 🙏Imagine if he turns back the clock for Brazil 👀 pic.twitter.com/EvsxnVxHr5— ESPN FC (@ESPNFC) June 23, 2026 „Viðhorf hans er mjög gott, hann er í góðu skapi, hann er góður leikmaður og liðsfélagi, hann er mjög alvarlegur og við viljum koma honum aftur inn á völlinn eins fljótt og auðið er. Hann býr yfir reynslu og þekkingu og honum gengur mjög vel,“ sagði Ancelotti. Þetta yrði fjórða heimsmeistarakeppni Neymars en hann var með 8 mörk og 4 stoðsendingar í 13 leikjum sínum á HM 2014, 2018 og 2022. Einn leikmaður sem verður ekki með er framherji Barcelona, Raphinha, sem meiddist aftan í læri í 3-0 sigri Brasilíu á Haítí. Ancelotti vildi ekki gefa upp hver myndi byrja í hans stað en Rayan, Endrick og Igor Thiago eru meðal þeirra valkosta sem hann hefur. 🚨🇧🇷 OFFICIAL: Neymar Jr day at the World Cup, he can play and 100% available. 🔙“Neymar can play, he’s training very well and he’s ready. I am very happy with him”, says Carlo Ancelotti. ✅ pic.twitter.com/y3ZXOSkTel— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 24, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira