Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júní 2026 17:51 Cristiano Ronaldo er kominn með tvö mörk gegn Úsbekistan. getty/Torbjorn Tande Cristiano Ronaldo skráði sig í sögubækur heimsmeistaramótsins í fótbolta þegar hann kom Portúgal yfir gegn Úsbekistan í leik sem nú stendur yfir í K-riðli. Hann er fyrsti leikmaðurinn í sögu HM sem skorar á sex mótum.
Eftir aðeins sex mínútur í leik Portúgals og Úsbekistans í Houston skoraði Ronaldo með góðu skoti eftir fyrirgjöf frá Joao Cancelo. Hann bætti öðru marki við á 39. mínútu. Hann rak þá smiðshöggið á skyndisókn portúgalska liðsins og skoraði eftir sendingu frá Bruno Fernandes. Í millitíðinni kom Nuno Mendes Portúgal í 2-0 með skoti beint úr aukaspyrnu. Ronaldo hefur nú skorað tíu mörk á HM en hann hefur skorað þau á sex mismunandi mótum, eitthvað sem enginn annar leikmaður hefur afrekað. Ronaldo skoraði fjögur mörk á HM 2018 og eitt mark á HM 2006, 2010, 2014 og 2022 og er nú kominn með tvö mörk á þessu móti. Með mörkunum tveimur í dag er Ronaldo orðinn markahæsti leikmaður Portúgals á HM. Hann tók fram úr Eusébio sem skoraði öll níu HM-mörk sín á Englandi 1966. Hinn 41 árs Ronaldo er næstelstur til að skora á HM en það met tilheyrir Kamerúnanum Roger Milla sem var 42 ára og 39 daga þegar hann skoraði gegn Rússum á HM í Bandaríkjunum 1994. Nú er hálfleikur í leik Portúgals og Úsbekistans en hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu frá honum hér fyrir neðan. Portúgal gerði 1-1 jafntefli við Lýðstjórnarlýðveldið Kongó í fyrsta leik sínum í K-riðli. Ronaldo var gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í þeim leik en hann hefur heldur betur minnt á sig í Houston í dag. Portúgal mætir Kólumbíu í lokaleik sínum í K-riðli á sunnudaginn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira