Maður dagsins: Fyrirliði Orra úr aðhlátursefni í hetju Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 10:02 Mikel Oyarzabal fagnar marki með Lamine Yamal í öruggum sigri Spánverja í gær. Grtty/ Juan Luis Diaz Mikel Oyarzabal átti magnaða byrjun í sigurleik Spánar á Sádí-Arabíu og hún gæti ekki verið ólíkari þeirri sem hann fékk í leiknum á undan.
Það var pressa á spænsku landsliðsmönnunum eftir markalausa jafnteflið á móti Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik á HM og á engum var hún meiri en á framherjanum Mikel Oyarzabal. Oyarzabal, sem er fyrirliði Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad og oftar en ekki sá sem heldur íslenskum landsliðsfyrirliðandum út úr liðinu. Oyarzabal fékk byrjunarliðssæti í fyrsta leik á HM eftir að hafa verið sjóðheitur með landsliðinu í síðustu leikjum. Hann var aftur á móti algjörlega ósýnilegur í þessum opnunarleik þegar ekkert gekk upp hjá Spánverjum gegn Grænhöfðaeyjum. Hann kom aldrei við boltann á fyrsta hálftíma leiksins og var sá fyrsti sem nær því síðan slík skráning hófst á HM. Byrjun hans á móti Sádunum í gær gat ekki verið ólíkari. Oyarzabal var þá aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu HM til að koma að þremur mörkum á fyrstu 25 mínútunum. Hann lagði fyrst upp mark fyrir Lamine Yamal á 10. mínútu og skoraði síðan sjálfur tvívegis með aðeins þriggja mínútna millibili. Oyarzabal var nálægt því að kóróna þrennuna en skot hans endaði í slánni. Hann spilaði bara fyrri hálfleikinn því hann og Yamal voru sparaðir enda 3-0 forysta í hálfleik og sigurinn nánast í höfn. Þessi þrjú sköpuðu mörk þýða að Oyarzabal hefur nú komið með beinum hætti að 21 marki í síðustu þrettán landsleikjum sínum, skorað fjórtán og gefið sjö stoðsendingar. Enginn í spænska liðinu hefur líklega vaxið meira síðan á Evrópumótinu 2024 en Mikel Oyarzabal. Hann tryggði spænska landsliðinu Evrópumeistaratitilinn með marki á 86. mínútu í úrslitaleiknum gegn Englandi. Sigurmarkið gerði hann að stjörnu og síðan þá hafa frammistaða hans og sjálfstraust aðeins haldið áfram að vaxa. Hann byrjaði það mót sem varamaður en hefur síðan þá orðið óumdeildur byrjunarliðsmaður. Hann kemur á sitt fyrsta heimsmeistaramót – hann missti af mótinu 2022 eftir að hafa slitið krossband í vinstra hné, sem hélt honum frá keppni í níu mánuði – í einstaklega góðu formi, eftir að hafa átt sitt markahæsta tímabil með félagsliði og skorað 11 mörk í 10 landsleikjum sínum áður en hópurinn var tilkynntur. Oyarzabal er með gráðu í viðskiptafræði en hann samþætti námið fótboltanum. „Það komu dagar þar sem ég var þreyttur þegar ég mætti í tíma eða ég var niðurdreginn af því að við höfðum tapað, en þetta var góð leið til að aftengjast fótboltanum,“ sagði hann. Þrátt fyrir að vera ekki sérlega hávaxinn – hann er 1,79 metrar – notar Oyarzabal skó númer 47. „Fólk er forvitið en maður venst því,“ segir hann. „Ég hef verið með stóra fætur síðan ég var mjög ungur.“ View this post on Instagram A post shared by Squawka Football (@squawkafootball)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira