Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 07:12 Mohamed Salah fagnar marki sínu í sigri Egypta í nótt. Getty/Alex Grimm Tveir leikir fóru fram á heimsmeistaramótinu í fótbolta í nótt. Egyptaland vann 3-1 sigur á Nýja-Sjálandi í öðrum leiknum en í hinum gerðu Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjar 2-2 jafntefli.
Mohamed Salah og félagar í egypska landsliðinu enduðu langa bið með 3-1 sigri á Nýsjálendingum en þetta var fyrsti sigur Egypta í úrslitakeppni HM í níundu tilraun. Mark og stoðsending frá Mohamed Salah í seinni hálfleik færðu Egyptum sigurinn. Finn Surman hafði komið Nýja-Sjálandi í 1-0 á 15. mínútu með skalla eftir sendingu frá Tim Payne. Þannig var staðan fram á 58. mínútu þegar Mostafa Ziko náði að jafna. Salah skoraði síðan eftir stoðsendingu frá fyrrnefndum Ziko á 67. mínútu og Trezeguet skallaði svo inn hornspyrnu Salah á 82. mínútu og innsiglaði sigurinn. Salah hafði byrjað mótið hægt, með ómarkvissri frammistöðu í jafntefli gegn Belgíu í opnunarleiknum og svo rólegum fyrri hálfleik gegn Nýsjálendingum. En þegar allt leit út fyrir að martraðir hans á heimsmeistaramótinu myndu halda áfram tókst þessum 34 ára gamla leikmanni loksins að setja mark sitt á mótið Eftir heimsmeistaramót sem best er að gleyma árið 2018 og eftir að hafa ekki komist áfram fjórum árum síðar í Katar, hefur besti leikmaður Egyptalands loksins átt sitt augnablik á stærsta sviðinu. Salah veit að stig gegn Íran mun koma landi hans áfram í næstu umferð – og það er ekki einu sinni víst að þeir þurfi á því að halda. „Þetta er frábært afrek fyrir alla leikmennina. Þetta er frábær sigur. Þetta er frábær stemning. Næsti leikur er mjög mikilvægur,“ sagði Mohamed Salah eftir leikinn. Egyptar eru efstir í G-riðli með fjögur stig en Íran og Belgía koma næst með tvö stig á meðan Nýja-Sjáland er á botninum með eitt stig. Nýsjálendingar eiga enn möguleika en þurfa þá að vinna Belga í lokaleiknum. Kevin Pina fagnar marki sínu en þetta var fyrsta mark Grænhöfðaeyja í sögu úrslitakeppni HM.Getty/Carmen Mandato Grænhöfðaeyjar tóku stig af Spánverjum í fyrsta leik og í nótt náðu þær einnig að stela stigi á móti Úrúgvæmönnum í 2-2 jafntefli í nótt. Kevin Pina kom Grænhöfðaeyjum yfir á 30. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu en þetta var fyrsta mark þjóðar hans á HM. Forystan entist þó ekki alveg fram að hálfleik. Rétt fyrir leikhlé jafnaði Úrúgvæ þegar Maxi Araújo var fyrstur á frákast og skallaði boltann fram hjá Vozinha, markverði Grænhöfðaeyja. Skömmu síðar hrundi vörnin enn frekar og Úrúgvæmaðurinn Agustín Canobbio skoraði eftir sendingu frá Maxi Araújo. Það héldu því flestir að Úrúgvæ væri búið að brjóta ísinn og myndi sigla sigrinum í höfn eftir þennan draumaendi sinn á hálfleiknum. En Grænhöfðaeyjar gáfust ekki upp. Eftir klukkutíma leik fengu Grænhöfðaeyjar gjöf frá úrúgvæsku vörninni. Varamaðurinn Hélio Varela þakkaði fyrir sig og skoraði jöfnunarmarkið fyrir nýliðana á HM. Þar með er Spánn efst í H-riðli með fjögur stig, en bæði Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjar fylgja á eftir með tvö stig. Sádi-Arabía er neðst með eitt stig. Í síðustu umferð mætir Spánn Úrúgvæ en Grænhöfðaeyjar mæta Sádi-Arabíu. Með stigi þar munu Grænhöfðaeyjar líklega komast áfram í útsláttarkeppnina.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Sjá meira