Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2026 15:15 Jude Bellingham og Harry Kane voru í stuði í sigrinum gegn Króatíu í fyrsta leik. Getty/Marvin Ibo Guengoer Miðað við núverandi stöðu í riðlunum á HM karla í fótbolta má segja að Englands bíði alveg sérstaklega erfið leið í útsláttarkeppninni, að heimsmeistaratitlinum.
Englendingar hófu riðlakeppnina á flottum 4-2 sigri gegn Króatíu og eru því í góðum málum fyrir leikina við Gana og Panama. Þeir sitja í efsta sæti L-riðils en það lið mun í 32-liða úrslitunum mæta liði úr 3. sæti E, H, I, J eða K-riðli (það veltur á árangri liðanna í 3. sæti). Eins og staðan er núna þá yrði það stjörnum prýtt lið Portúgals sem England myndi mæta, strax í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar, því Portúgal er í 3. sæti K-riðils eftir óvænt jafntefli við Austur-Kongó í fyrsta leik. BBC sýnir á vefsíðu sinni hvernig útsláttarkeppnin myndi líta út miðað við núverandi stöðu í riðlunum. Hér má sjá leið Englands og fleiri liða úr 32-liða úrslitum, eins og staðan er, þar sem England myndi byrja á að mæta Portúgal 1. júlí. Athugið að tímasetningar eru á breskum tíma, klukkutíma á undan íslenskum.Skjáskot/BBC Hér má sjá leið liða á borð við Þýskaland, Holland og Bandaríkin, frá 32-liða úrslitum, eins og staðan er núna. Athugið að tímasetningar eru á breskum tíma, klukkutíma á undan íslenskum.Skjáskot/BBC Leikir við Portúgal, Spán, Frakkland og Argentínu? Miðað við stöðuna í riðlunum núna, og líkleg úrslit í útsláttarkeppninni, myndi England sem sagt byrja á að mæta Portúgal, gæti svo mætt Spáni í 16-liða úrslitum, því næst Frakklandi eða Brasilíu, og svo Argentínu á leið í úrslitaleikinn. Öll þessi lið eru nú „sömu megin“ í útsláttarkeppninni en í hinum helmingnum eru Þýskaland, Holland, Marokkó og Noregur á meðal sterkustu þjóðanna sem þar með gætu mögulega beðið Englands í úrslitaleiknum. Það á hins vegar margt eftir að gerast áður en þessi mál skýrast og til að mynda ljóst að ólíklegt er að Spánn og Portúgal endi í 3. sæti síns riðils eins og staðan er núna. Staða liðanna í 3. sæti í riðlunum tólf í dag. Átta stigahæstu liðin komast áfram í 32-liða úrslit.Skjáskot/Wikipedia Á HM í ár eru í fyrsta sinn 48 lið með og aðeins 16 þeirra falla út eftir riðlakeppnina, áður en 32-liða útsláttarkeppni tekur við. Þetta þýðir að í riðlunum tólf komast tvö lið upp úr hverjum riðli og svo átta lið með bestan árangur í 3. sæti síns riðils. Tvö lið eru þegar úr leik en það eru Tyrkland og Haítí sem ljóst er að enda á botni sinna riðla.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira