Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2026 14:01 Joaquin Ketlun er mættur á stærsta svið fótboltans, sem markmannsþjálfari fyrir Paragvæ. Instagram/@joaketlun1 Eftir að hafa spilað fimm ár í neðri deildum á Íslandi er argentínski markvörðurinn Joaquin Ketlun nú mættur á HM í fótbolta til að hjálpa landsliði Paragvæ.
Ketlun er í starfliði Paragvæ og hjálpar þar markvörðum liðsins. Orlando Gill hélt einmitt markinu hreinu í 1-0 sigrinum magnaða gegn Tyrklandi í nótt, þar sem Paragvæjar voru manni færri allan seinni hálfleik en lönduðu samt þremur stigum og sendu Tyrkland út af mótinu. View this post on Instagram A post shared by Joaquin Ketlun (@joaketlun1) Ketlun er þrítugur og hefur síðustu ár verið aðalmarkvörður Víðis í Garði, eða frá og með árinu 2022, og meðal anars unnið Fótbolta.net bikarinn með liðinu árið 2023. Áður var hann svo hjá Sindra á Höfn í Hornafirði í eitt ár, sumarið 2021. Ketlun hefur samhliða því að spila sjálfur getið sér gott orð fyrir greiningar fyrir markverði, og deilt efni á samfélagsmiðlum en hann er með yfir 100.000 fylgjendur á Instagram. Þessar greiningar skiluðu sér í því að hann fékk boð um að koma í heimsókn til spænska stórveldisins Real Madrid í fyrra. Ketlun hafði þá fengið skilaboð frá Luis Llopis, markmannsþjálfara Real Madrid, sem vildi ólmur fá hann í heimsókn, eins og Ketlun talaði um í viðtali við Vísi í fyrra. „Hann bauð mér til Madrid. Í fyrstu sagði ég við hann: Þú ert líka velkominn til Íslands. Því ég vissi ekki hvort þetta væri satt eða ekki. En hann bauð mér og það var mjög góð reynsla. Þetta var auðvitað frábær reynsla. Stórir leikmenn, besti markvörður heimsins í dag, og staðurinn er magnaður. Fullt af sundlaugum, fullt af völlum. Þetta er klikkað. Maður varð agndofa við að sjá þetta allt saman,“ sagði Ketlun síðasta sumar um Madridarheimsóknina. Nú hefur annað ævintýri tekið við og hann er mættur með paragvæska landsliðinu á HM þar sem liðið byrjaði á að þola 4-1 skell gegn Bandaríkjunum en vann svo sigurinn frækna í gærkvöld. Paragvæ mætir næst Ástralíu í lokaumferð riðlakeppninnar en þarf sigur til að komast úr 3. sæti og upp fyrir Ástralíu. Stigin þrjú sem liðið fékk í gærkvöld gætu þó mögulega dugað til að koma Paragvæ í 32-liða úrslitin sem eitt af átta bestu liðunum í 3. sæti í riðlunum tólf.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira