Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2026 12:30 Arda Güler reynir að stappa stálinu í Merih Demiral eftir tapið í nótt. Getty/Matthew Huang Tyrkjum var spáð ágætu gengi á HM í fótbolta en eftir töp í fyrstu tveimur leikjunum er nú þegar orðið ljóst að þeir enda í neðsta sæti D-riðils og falla úr leik. „
Við erum mjög leiðir. Þetta er vandræðalegt. Við biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar,“ sagði Arda Güler, skærasta stjarna tyrkneska landsliðsins og leikmaður Real Madrid. Tyrkir hafa átt 62 skot en enn ekki skorað eitt einasta mark, í 1-0 tapi gegn Paragvæ í nótt og 2-0 tapi gegn Ástralíu í fyrsta leik. Það breytir engu hvernig leikur þeirra við Bandaríkin fer, í lokaumferð riðlakeppninnar, því Tyrkland getur ekki komist úr botnsætinu. Tapið gegn Paragvæ í nótt er sérstaklega neyðarlegt því Paragvæ missti Miguel Almiron af velli með rautt spjald í lok fyrri hálfleiks, fyrir að hylja munn sinn þegar hann lét einhver orð falla í garð leikmanns Tyrklands. „Við erum í alvöru mjög leiðir,“ sagði Güler, algjörlega miður sín yfir því að geta ekki veitt tyrknesku þjóðinni neinar gleðistundir á mótinu. „Við vitum ekki hvernig við eigum að lýsa tilfinningum okkar. Inni í búningsklefanum eru allir líka mjög leiðir, allir gráta. Á næstu mótum, í næstu leikjum, viljum við gera okkar besta til að gleðja þjóðina okkar aftur. Við biðjum hana afsökunar,“ sagði Güler. Fyrrverandi landsliðsmenn og fleiri sérfræðingar hafa vitaskuld látið í sér heyra eftir þessa niðurstöðu og einn þeirra, Ilker Yagcioglu, beindi spjótum sínum að þjálfaranum Vincenzo Montella. „Hann hefur grafið sína eigin gröf,“ sagði Yagcioglu og annar fyrrverandi landsliðsmaður, Nihat Kahveci, lét menn heyra það í myndbandi sem birt var á Twitter. „Okkur tókst aðeins að standa undir brotabroti af því sem vænst var af okkur,“ sagði Kahveci.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira