Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2026 11:11 Scott McTominay og félagar eiga greinilega afar dygga stuðningsmenn sem flugu í gegnum Ísland á leið sinni á HM. Samsett/BBC/Getty Skoska fótboltalandsliðið á hreint einstaka stuðningsmenn og í þeim hópi eru félagarnir David Smith og Fraser MacIntyre sem ákváðu að fara á lítilli flugvél yfir Atlantshafið og sjá sína menn spila á HM í Bandaríkjunum.
BBC fjallaði um þá Smith og MacIntyre sem eru formaður og varaformaður hjá skoska knattspyrnufélaginu Ayr United. Þeir ferðuðust í 22 tíma, með ekkert salerni í litlu rellunni sinni, en komust á endanum á áfangastað, til Rhode Island. Þeir höfðu þá ferðast í gegnum Ísland, Grænland og Kanada og fengið frábært útsýni á leiðinni. „Við vorum á heimleið eftir leik hjá Ayr United og ræddum um hvað við myndum gera ef Skotland kæmist á HM. Fraser sagði þá „af hverju tökum við ekki flugvélina?“ og þó að ég hafi í alvörunni ekkert verið búinn að drekka þá sagði ég bara „já, gerum það“,“sagði Smith. View this post on Instagram A post shared by BBC Scotland News (@bbcscotnews) Ferðalagið gekk vel en félagarnir ákváðu að sleppa því að drekka kaffi á leiðinni og fengu sér imodium-lyfið til að minnka líkurnar á að verða mál, á flugi yfir rúmsjó. Ferðalagið gekk mjög vel þó að það kæmi örlítill skrekkur í menn við komuna til Kanada. „Þegar við vorum að lenda í Montreal þá hefði ég ekki höndlað það ef ég hefði flogið vélinni. En hann var rólegur og yfirvegaður, kom okkur niður og jafnvel þó að við lentum í svolítið rykkjóttu veðri þá hélt hann alltaf ró sinni,“ sagði Smith um félaga sinn og þeir bættu við að ferðalagið hefði verið algjörlega ógleymanlegt. Skotar urðu að sætta sig við 1-0 tap gegn Marokkó í gærkvöld en unnu 1-0 sigur gegn Haítí í fyrsta leik. Þeir mæta svo Brasilíu í lokaumferð riðlakeppninnar og þurfa sigur þar til að vera öruggir um sæti í 32-liða úrslitum en mögulega duga stigin þrjú til að koma Skotum áfram sem eitt af átta bestu liðunum í 3. sæti í riðlunum tólf.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira