Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2026 10:17 Matías Galarza var valinn maður leiksins eftir frækinn sigur Paragvæ gegn Tyrklandi í nótt. Getty/Eric Verhoeven Afi, pabbi og bróðir Matías Galarza gerðu garðinn frægan sem markmenn en sjálfur endaði Matías sem miðjumaður. Hann valdi líka að spila fyrir landslið Paragvæ og skoraði sigurmark liðsins með góðu skoti gegn Tyrklandi í nótt.
Matías Galarza varð fljótastur til að skora mark í leik á yfirstandandi HM þegar hann skaut nokkuð utan teigs, neðst í hægra hornið hjá Tyrkjum eftir rétt rúma mínútu af leiknum. Galarza og félagar héldu svo út þrátt fyrir að spila manni færri allan seinni hálfleikinn. Þessi 24 ára miðjumaður hefði allt eins getað orðið landsliðsmaður Bólivíu en var þess í stað í lykilhlutverki í 2-2 jafntefli við Bólivíu á útivelli í undankeppni HM, og átti sinn þátt í því að Bólivía komst á endanum ekki á mótið. Pabbi Matíasar, Rolando Galarza, segir bólivíska miðla hafa kallað son sinn „svikara“ og átt erfitt með að sætta sig við að Matías skyldi velja að spila fyrir Paragvæ. Rolando var hins vegar fljótur að benda á að Matías væri fæddur í Paragvæ, þó að hann hefði svo alist upp að miklu leyti í Bólivíu en þar er Rolando fæddur og spilaði um árabil sem markvörður, auk þess að vera markmannsþjálfari bólivíska landsliðsins. Afi Matíasar, Arturo, varði mark beggja landsliða, Bólivíu og Paragvæ, á 7. og 8. áratug síðustu aldar. Bróðir Matíasar var svo einnig markvörður, eins og pabbinn og afinn, og stóð í marki U21-landsliðs Bólivíu. Galarza hefur hins vegar, að sögn pabba síns, aldrei verið í vafa um að hann vildi spila fyrir landið sem hann fæddist í, Paragvæ. Sá draumur rættist í águst 2022, þegar Galarza var enn aðeins tvítugur. Hann hóf fótboltaferilinn með Olimpia í Paragvæ en var fenginn 19 ára gamall til Vasco da Gama í Brasilíu. Þaðan var hann svo fenginn til River Plate í Argentínu, heimalandi móður sinnar, í fyrrasumar en Galarza fór svo að láni til Atlanta United í bandarísku MLS-deildinni í mars síðastliðnum og á félagið rétt á að eignast leikmanninn í sumar. Miðað við hetjutilburði Galarza í nótt ætti ekki að koma á óvart að sú yrði raunin og á meðan fylgist markvarðafjölskyldan hans stolt með.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira