Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Freyja Þórisdóttir skrifar 19. júní 2026 14:33 "Það er einhver bið í að bjórinn fari í almenna sölu, því mæli ég endregið með því að tónleikagestir um helgina láti þetta tækifæri ekki framhjá sér fara." segir Árni í tilkynningunni. Aðsend Borg Brugghús og Kaleo hafa leitt saman hesta sína og hefur nú verið gefinn út samstarfsbjórinn, Hey Gringo, sem dregur nafn sitt af samnefndu lagi sveitarinnar af plötunni Surface Sounds frá árinu 2021. Hann fer þó ekki í almenna sölu fyrr en síðar í sumar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu en þar er einnig greint frá því að bjórinn detti ekki í verslanir fyrr en seint í sumar, líklega í ágústmánuði, en að tónleikagestir á KALEO-tónleikunum á Þingvöllum um helgina fái „einstakt forskot á sæluna“. Sól og sandur á milli tánna Hey Gringo verður fyrst í boði við afhendingu armbanda í verslun 66 gráður Norður á Hafnartorgi í dag, föstudaginn 19. júní, áður en hann verður fáanlegur á tónleikasvæðinu sjálfu á laugardag en fólki býðst að koma og smakka hann til klukkan 18:00 í dag. „Hugmyndin af bjórnum var að fanga alvöru sumarstemmingu: sól, sandur á milli tánna, fáránlega ferskur bjór og lime sneið ef fólk vill fara með þetta alla leið,“ segir Árni Theodór Long, Bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi í tilkynningunni. Þá bætir hann við að hugmyndin um að brugga bjór af þessu taki hafi lengi blundað hjá þeim í brugghúsinu en að loks hafi henni verið hrundið í framkvæmd nú þegar leiðir þeirra lágu saman með Kaleo. „Það lá í augum uppi að bjórinn fengi nafnið Hey Gringo enda lagið ekkert eðlilega gott og grípandi og fangar þessa stemmingu fullkomlega. Það að fá tækifæri til að vinna með jafn stóru og flottu bandi og Kaleo er sannur heiður og virkilega skemmtilegt,“ segir Árni jafnframt og bætir við að meðlimir hljómsveitarinnar hafi mætt í brugghúsið og tekið þátt í að búa bjórinn til. „Kaleo-menn mættu að sjálfsögðu til okkar í brugghúsið, brettu upp ermar og tóku þátt í að skapa þetta með okkur og gáfu okkur bruggmeisturunum ekkert eftir í þeim efnum“.
Drykkir Áfengi Kaleo Mest lesið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið