Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 10:03 Jonathan David fagnaði þremur mörkum gegn Katar í gær. Getty/Emma Ottosen Framherjinn Jonathan David átti stærstan þátt í því að Kanada næði í fyrsta sinn að vinna leik á heimsmeistaramóti, þegar hann skoraði þrennu í 6-0 sigrinum á Katar. „
Enginn Kanadabúi mun gleyma þessum degi,“ sagði Jesse March, þjálfari Kanada, eftir sigurinn sögulega. Hinn 26 ára gamli David gleymir að minnsta kosti þessum degi aldrei. Eftir afar krefjandi fyrstu leiktíð með Juventus og slaka frammistöðu í jafnteflinu við Bosníu í fyrsta leik á HM, fór hann á kostum gegn Katar og er nú markahæstur á HM ásamt Lionel Messi sem einnig er búinn að skora þrennu. David er fæddur í New York en fjölskylda hans flutti strax til Haítí, þaðan sem foreldrar hans eru. Þegar David var sex ára flutti fjölskyldan svo til Kanada og kom sér fyrir í Ottawa, þar sem hann tók svo sín fyrstu skref í fótboltanum. David dreymdi um að komast sem fyrst til Evrópu og spila þar fótbolta, og var 18 ára gamall kominn í atvinnumennsku hjá Gent í Belgíu. Þar raðaði hann inn mörkum og David hélt því áfram hjá franska liðinu Lille á árunum 2020-25, þar sem hann skoraði alls 87 mörk í 187 deildarleikjum. Hjá Lille virtust þeir Hákon Arnar Haraldsson tengja vel saman en David fór svo til Juventus síðasta sumar, eftir að samningur hans við Lille rann út. Hjá Juventus hefur David hins vegar átt afar erfitt uppdráttar og því kannski ekki skrýtið að félagið sé sagt tilbúið að selja kappann í sumar. Enskir miðlar hafa til að mynda orðað David við Newcastle og Leeds. David er markahæstur í sögu kanadíska landsliðsins með 39 mörk í 79 leikjum og haldi hann áfram að bæta við mörkum á HM, nú þegar svo gott sem öruggt er að Kanada kemst að lágmarki í 32-liða úrslit, er ljóst að verðmiðinn mun bara hækka.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira