Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 08:03 Florencia Pena laug því að áhorfendum að pabbi Lionels Messi væri dáinn. Hann glímir við veikindi. Samsett/Instagram/Getty Fjölskylda Lionels Messi hefur sent frá sér yfirlýsingu og beðið fólk að sýna nærgætni eftir að ranglega var fullyrt í argentínskum miðli að pabbi Messi væri dáinn.
Í yfirlýsingunni segir að Jorge Messi, pabbi Lionels Messi, glími við „heilsutengt mál“ og sé nú í umsjón lækna en „á batavegi og á réttri leið miðað við ástandið sem hann glímir við“. Tilkynningin kom eftir að leikkonan Florencia Pena hafði fullyrt það í argentínska miðlinum Luzu TV að Jorge Messi væri fallinn frá. Harma skort á nærgætni og tillitssemi „Í ljósi vangaveltna sem hafa verið á kreiki undanfarnar klukkustundir vill fjölskyldan lýsa yfir djúpri vanlíðan sinni vegna skorts á nærgætni, virðingu og tillitssemi sem sumir hafa sýnt í máli sem er alfarið einkamál fjölskyldunnar. Fjölskyldan vill einnig taka fram að einungis nánustu ættingjar hans hafa raunverulegar og nákvæmar upplýsingar um ástand Jorge. Því ber ekki að líta á neina útgáfu, yfirlýsingu eða upplýsingar sem ekki koma beint frá fjölskyldunni og opinberum miðlum hennar sem gildar eða sannar,“ sagði í yfirlýsingu Messi-fjölskyldunnar. Nicolás Occhiato, eigandi Luzu TV, brást við þessu með því að reka Pena og alla þá sem komu að þessari falsfrétt. „Mér blöskrar alveg jafnmikið og öllum öðrum,“ sagði Occhiato samkvæmt La Nacion. Fékk rangar upplýsingar í eyrað Sjálf send Pena frá sér yfirlýsingu á Instagram og sagði: „Ég bið Messi-fjölskylduna afsökunar á þeirri hræðilegu stund sem ég ímynda mér að hún gangi í gegnum. Ég er afar miður mín yfir því að hafa miðlað þessum sárindum. Ég verð að taka það fram að mér voru gefnar þessar röngu upplýsingar í miðri beinni útsendingu, þær sagðar staðfestar í gegnum eyrnatól af framleiðsluteymi þáttarins, og ég treysti því. Engu að síður tek ég ábyrgð á því að vera hluti af þessum mistökum og þess vegna hef ég ákveðið að stíga til hliðar og ljúka þátttöku minni hjá Luzu. Ég biðst aftur innilega afsökunar, mér urðu á mistök.“ Miklar vangaveltur voru í Argentínu um heilsu Jorge Messi eftir að Lionel Messi felldi tár í fyrsta leik Argentínu á HM, þar sem Messi skoraði þrennu í 3-0 sigri gegn Alsír. Lionel Messi felldi tárin eftir fyrsta mark sitt í leiknum og sagði eftir leik: „Af hverju fór ég að gráta? Það snerist um eitthvað allt annað en fótbolta. Ég gekk í gegnum erfiða daga en ég er þakklátur öllu starfsliðinu og liðsfélögum mínum sem stóðu alltaf þétt við bakið á mér og gáfu mér mikinn styrk til að komast í gegnum þetta.“ Þessi fyrsta HM-þrenna Messi, á hans sjötta heimsmeistaramóti, gerði hann jafnan Miroslav Klose yfir markahæstu menn í sögu HM, með 16 mörk. Hann varð fyrsti maðurinn til að ná að spila á sex heimsmeistaramótum en nú hefur Cristiano Ronaldo náð því líka. Árangur Messi vekur ekki síður athygli í ljósi þess að í síðasta mánuði var honum skipt af velli í leik með Inter Miami vegna vöðvameiðsla. Hann jafnaði sig í tæka tíð til að geta tekið þátt í síðasta leiknum fyrir HM, vináttulandsleiknum við Ísland, og skoraði þar úr víti sem hann átti stóran þátt í að næla í, strax eftir að hann kom inná sem varamaður í 3-0 sigri.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira