Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 07:29 Mexíkóar fögnuðu vel eftir markið dýrmæta frá Luis Romo. Getty/Luke Hales Gestgjafar Mexíkó komust í nótt áfram í 32-liða úrslit HM í fótbolta, fyrstir þjóða, með því að vinna Suður-Kóreu 1-0 í Guadalajara.
Eina mark leiksins skoraði Luis Romo snemma í seinni hálfleik, eftir skelfileg mistök Suður-Kóreumanna. Fyrirgjöf barst inn í teiginn og eftir háan skalla ætlaði Kim Seung-gyu, markvörður Suður-Kóreu, að grípa boltann en hann lenti svo á samherja sínum og missti boltann beint fyrir fætur Romo sem skoraði nokkuð auðveldlega í autt markið. Luis Romo nýtti sér það að markvörður Suður-Kóreu missti boltann, og skoraði í autt markið.Getty/David Ramos Mexíkó hefur því unnið fyrstu tvo leiki sína á mótinu, eftir 2-0 sigur gegn Suður-Afríku í fyrsta leik, og hefur þar með þegar tryggt sér efsta sætið í A-riðli, sama hvernig fer gegn Tékklandi í lokaumferð riðlakeppninnar. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2002 sem Mexíkó vinnur sinn riðil á HM. Suður-Kórea á enn góða möguleika á að komast einnig áfram í 32-liða úrslitin eftir að hafa unnið Tékkland í fyrsta leik. Liðið mætir Suður-Afríku í lokaumferðinni en Suður-Afríka og Tékkland eru með eitt stig hvort eftir jafntefli sitt. Suður-Kórea fékk sitt besta færi til að skora í nótt þegar örfáar mínútur voru eftir en það var líka algjört dauðafæri. Cho Gue-sung fékk þá frían skalla af fjærstöng en Raul Rangel tókst að verja skallann og einnig skot Yang Hyun-jun sem náði frákastinu. Son Heung-min, fyrirliði Suður-Kóreu, hafði áður verið nálægt því að skora þegar hann vippaði yfir Rangel en Edson Alvarez bjargaði á marklínu.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira